Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. febrúar 2026 11:24 Donald Trump tilkynnti áætlunina í færslu á Truth Social. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu. „
Ég er að vinna með hinum frábæra Jeff Landry, ríkisstjóra Louisiana-fylkis, og við ætlum að senda frábært spítalaskip til Grænlands til að aðstoða fjölda fólks sem er veikt, og er ekki verið að hjálpa. Hann er á leiðinni!!!“ skrifar forsetinn á samfélagsmiðlinum sínum Truth Social. Með fylgir mynd af spítalaskipi sem lítur út eins og teikning en ekki liggur fyrir hvort að myndin sé raunveruleg eða búin til af gervigreind. Forsetinn hefur ítrekað deilt gervigreindarmyndum og -myndskeiðum. Trump lét þessa mynd fylgja með í færslunni. Þetta er teikning af bandaríska spítalaskipinu Mercy.Truth Social Í umfjöllun CNN segir að bandaríski sjóherinn eigi töv spítalaskip, USNS Mercy og USNS Comfort, en þeir eru notaðir til að aðstoða bandaríska hermenn á erlendri grundu og veita neyðaraðstoð. CNN tekur einnig fram að ekki liggi fyrir hvaða veikindi Trump var að vísa í færslunni sinni þar sem í landinu er ókeypis, ríkisrekið heilbrigðiskerfi. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmekrur, hefur brugðist við færslu forsetans, en vísar þó ekki í nafn hans. „Ég er ánægð að búa í landi þar sem er ókeypis og jafnt aðgengi allra að heilbrigðiskerfinu. Þar sem það eru ekki tryggingar og auður sem ráða því hvort þú fáir viðeigandi meðferð. Sama nálgun er á Grænlandi. Gleðilegan sunnudag til ykkar allra,“ skrifar Frederiksen í færslu á Facebook. Dregið úr hótununum Grænland hefur verið töluvert í umræðunni það sem af er ári eftir að Trump ítrekaði að hann girnist landið. Hvorki Danir né Grænlendingar vildu að landið yrði hluti af Bandaríkjunum. Að endingu funduðu utanríkisráðherrar Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands og sammæltust um að stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands. Stuttu síðar hélt Karoline Leavite, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, því fram að samþykkt hefði verið að halda áfram viðræðum um það hvernig Bandaríkin myndu eignast Grænland, en Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, gagnrýndi það. Í kjölfar fundarins hefur dregið úr hótunum Trumps en Fredriksen sagði fyrir viku síðan að hann girnist enn Grænland. Jens Frederik Nielsen, forseti heimastjórnarinnar á Grænlandi, sagði að þrýstingur Bandaríkjanna í garð Grænlendinga væri óásættanlegur. Fréttin var uppfærð með færslu Frederiksen.
Grænland Bandaríkin Danmörk Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Donald Trump Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira