Biðin bitnar á börnunum Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifa 1. apríl 2026 06:30 Í Reykjavík fer fram öflugt og fjölbreytt íþróttastarf. Slíkt starf styrkir nærsamfélög og hverfabrag og er ómetanlegt fyrir vellíðan og forvarnir barna. En í of mörgum hverfum er aðstaðan ekki í samræmi við það mikilvæga starf sem unnið er. Eftir samtöl okkar við fólk og stjórnendur íþróttafélaga víða um borgina er ljóst að gera má miklu betur. Við í Viðreisn viljum jafna aðgengi barna að góðri íþróttaaðstöðu, sama hvar þau búa. Sem foreldrar í Laugardal upplifum við það á eigin skinni hvaða áhrif skortur á íþróttaaðstöðu hefur á okkar börn — og staðan í hverfinu okkar er skýrt dæmi um hvar bæta þarf grunnþjónustu. Undanfarin ár hefur börnum í Laugardal fjölgað mikið, án þess að uppbygging hafi fylgt eftir. Innviðir íþróttafélaganna Ármanns og Þróttar eru engan veginn ásættanlegir miðað við fjölda barna í hverfinu. Þrátt fyrir mikinn metnað kennara, þjálfara og annars starfsfólks eru aðstæður oft krefjandi og jafnvel heilsuspillandi. Borgin verður að tryggja húsnæði Í hverfinu eru fjórir grunnskólar. Af þeim eru aðeins tveir með íþróttahús — og þau eru mygluð, of lítil og standast ekki nútímakröfur. Hinir tveir skólarnir hafa enga innanhúsaðstöðu. Þetta þýðir að börn þurfa að stunda skólaíþróttir við óviðunandi aðstæður, á forsendum annarra eða ganga langar leiðir í aðra sali, sem skerðir kennslutíma. Kennsla og æfingar ráðast því ekki af þörfum barna heldur því hvenær rými losnar. Þetta er óásættanlegt. Íþróttastarf í hverfinu er mjög öflugt með frábæru starfsfólki, en fer fram við þröngan kost. Körfuboltadeild Ármanns er stærsta körfuboltadeild Reykjavíkur, en hefur ekkert eigið húsnæði og þarf stöðugt að berjast fyrir æfingatímum. Æfingar falla ítrekað niður. Svipuð staða er hjá Þrótti, þar sem loforð um fjölnota íþróttahús hefur enn ekki verið efnt, rúmum tveimur áratugum síðar. Laugardalur er ekki afgangsstærð heldur eitt stærsta og barnmesta hverfi borgarinnar. Þjónustan á að endurspegla það. Börnin eiga ekki að bíða lengur. Flóknari hversdagur fyrir fjölskyldur Aðgerðaleysi borgarinnar bitnar á börnunum. Æfingar falla niður, foreldrar keyra á milli hverfa og daglegt líf verður flóknara en það þarf að vera. Alltaf er verið að bíða — eftir uppbyggingu, eftir svörum, eftir að staðið sé við gefin loforð og eftir stórum verkefnum eins og Þjóðarhöllinni sem eiga að leysa vandann. Á meðan heldur biðin áfram, og hún bitnar á börnunum. Þetta er ekki einsdæmi. Í okkar huga er ljóst að seinagangur og óvissa gera starf íþróttafélaganna erfiðara en þurfa þykir. Við getum gert þetta betur. Þetta snýst ekki um fleiri skýrslur eða spretthópa, heldur einfaldlega um forgangsröðun. Taka þarf ákvörðun og hefja framkvæmdir - og borgin þarf að veita svör og standa við gefin loforð Þetta snýst um grunnþjónustu Við þurfum að byggja upp góða íþróttaaðstöðu þar sem börnin eru — aðstöðu sem þjónar bæði skólum og íþróttastarfi. Þetta er ekki lúxus, heldur grunnþjónusta og virðing fyrir börnum og fjölskyldum. Við vitum að þetta er hægt því dæmin eru til staðar - og Viðreisn mun ganga í verkin. Höfundar eru íbúar og foreldrar í Laugardal og skipa 3. og 4. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þorvaldur Davíð Kristjánsson Mest lesið Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar