Upp­gjörið: Valur - KA 39-21 | Al­gjör slátrun á Hlíðar­enda

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson fór á kostum í kvöld.
Björgvin Páll Gústavsson fór á kostum í kvöld. vísir/Diego

Að vera slátrað er hvorki geðsleg né virðuleg lýsing á atburðum sem gerast í íþróttakappleikjum. Hins vegar er hægt að nota fá önnur orð um leik Vals og KA í fyrsta leik liðanna í undanúrslita einvígi liðanna í handbolta, þar sem spilamennska KA var hvorki geðsleg né virðuleg. Lokatölur á Hlíðarenda 39-21 fyrir Val, sem slátraði KA.

Á fyrstu átta mínútum leiksins var leikurinn jafn og var staðan 2-2. Á þessum kafla voru Valsmenn tvisvar sinnum búnir að fá tveggja mínútna brottvísun. Að þeim brottvísunum loknum þá komu Valsmenn sér í forystu.

Eftir u.þ.b. korters leik tók Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, leikhlé. Staðan þá 6-3 og KA í vandræðum sóknarlega ásamt því að hafa brennt af vítakasti. KA tókst að skora tvö mörk í röð eftir leikhléið og því aðeins eins marks munur á liðunum.

Þá kúpluðu Valsmenn sig upp um gír og neyddist Andri Snær að taka aftur leikhlé á 24. mínútu enda staðan orðin 14-8 fyrir heimamönnum. Lítið sem ekkert batnaði í leik KA fram að hálfleik og staðan 17-9 í hálfleik fyrir heimamönnum.

Valsmenn hófu síðari hálfleikinn með því að skora fyrstu þrjú mörk hans og útlitið því kolsvart hjá gulum Akureyringum.

Eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik tók KA sitt þriðja leikhlé. Þá hafði Valur skorað níu mörk í síðari hálfleik á meðan KA hafði aðeins komið boltanum tvisvar í netið. Staðan 26-11.

Á þessum tímapunkti voru árarnar hjá leikmönnum KA komnar í bátinn fræga. Valsmenn léku sér að gestunum sem eftir lifði leiks og í raun allir að bíða eftir því að leikurinn myndi klárast, og þá helst gestirnir sjálfir.

Atvik leiksins

Undir lok leiksins var Agnar Smári Jónsson kominn inn á hjá Val. Hann hafði haft hægt um sig í fyrstu sóknum sínum en ákvað loks að láta þrumuskot ríða af sem söng í netinu. Hins vegar um leið og hann lét þrumuskotið ríða af fóru ljósin af N1-Höllinni í um þrjár sekúndur. Ástæðan fyrir því ku vera vegna eldingar. Það verður þó ósagt látið hvort óveðrið, sem ríður yfir landið, eða þrumuskot Agnars Smára hafi ollið rafmagnsleysinu. Markið fékk því miður ekki að standa, vegna ljósleysisins.

Stjörnur og skúrkar

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, var frábær í leiknum og varði 17 skot eða u.þ.b. 55% skota sem hann fékk á sig. Annars var varnar- sem og sóknarleikur heimamanna frábær í alla staði.

Frammistaða KA í raun skammarleg, í jafn stórum leik sem þessum. Það vantaði upp á ansi margt í leik þeirra gulklæddu í kvöld.

Dómarar

Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson með fín tök á þessum leik. Helstu vandræðin sem þeir þurftu að takast á við var leikklukkan í N1-höllinni sem var í tvígang með vesen, sem leystist þó að lokum.

Stemning og umgjörð

Fín mæting á þennan leik, þrátt fyrir veðuraðstæður. Stuðningsmannasveit Vals lífleg í dag sem var ánægjulegt að sjá.

Þorgils Jón: „Bara einn leikur af mögulega fimm“

„Við vorum vel gíraðir í dag. Ég er ánægður með hvernig við mættum inn í þennan leik. Vörnin var geðveik og Björgvin frábær líka, ég held að það hafi verið stoðin í þessum sigri,“ sagði Þorgils Jón Svölu Baldursson, línumaður Vals, eftir leikinn.

Var það það helsta sem skóp þennan sigur?

„Já, ég vil meina það. Við vorum frábærir í vörn í alla staði. Vorum með góð svör við þeirra sóknarleik.“

Aðspurður hvort það skipti máli að vinna leiki sem þessa jafn stórt og raun bar vitni, þá hafði Þorgils Jón þetta að segja.

„Það er ógeðslega gaman og við erum stoltir af því, en maður veit að þetta er bara einn leikur af mögulega fimm. Þannig að við getum ekki farið fram úr okkur.“

Þorgils Jón býst við að þjálfarateymi Vals leggi upp næsta leik einvígisins, sem fram fer á Akureyri, á svipaðan hátt.

„Já, ég býst bara við því, sama game-plan. Við vonum bara að við verðum ekki veðurtepptir. Við mætum gíraðir til leiks norður.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira