Handbolti

Janus Daði klúðraði örlagavíti í undan­úr­slitum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason mun ekki kveðja Pick Szeged sem bikarmeistari. 
Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason mun ekki kveðja Pick Szeged sem bikarmeistari.  Vísir/Vilhelm

Janus Daði Smárason reyndist örlagavaldurinn þegar Pick Szeged féll úr leik í vítakeppni gegn Veszprém í undanúrslitum ungversku bikarkeppninnar í handbolta.

Leikurinn var æsispennandi frá upphafi til enda og liðin skildu jöfn eftir venjulegan leiktíma. Pick Szeged var þó skrefinu á undan og tók reglulega í gegnum allan leikinn tveggja marka forystu, en alltaf svaraði Veszprém og leikurinn endaði með 29-29 jafntefli.

Bjarki Már átti stórleik og skoraði níu mörk, þar af fimm úr vítaköstum. Mario Sostaric var hins vegar markahæstur allra, með tíu mörk fyrir Pick Szeged. Janus Daði skoraði þrjú mörk fyrir Pick Szeged en átti svo eftir að reynast skúrkurinn í vítakeppninni.

Í vítakeppninni var greinilegt hversu mikið væri undir hjá ungversku stórliðunum tveimur.

Hugo Descat klúðraði fyrsta víti Veszprém og Mario Sostaric klúðraði fyrsta víti Pick.

Bjarki Már skoraði svo úr næsta víti Veszprém og bæði lið skoruðu úr sínum næstu skotum, þar til staðan stóð 33-32 í bráðabana og komið var að Janusi Daða.

Janus þurfti að skora til að jafna og halda bráðabananum áfram en Mikael Appelgren varði vítið og tryggði Veszprém áfram í úrslitaleikinn.

Veszprém mun mæta annað hvort Neka eða Tatabánya í úrslitaleiknum en þeirra leikur fer fram síðdegis í dag.

Reikna má með sigri Veszprém þar en liðið hefur orðið bikarmeistari nánast á hverju einasta ári á þessari öld, fyrir utan þau skipti sem Pick Szeged hefur unnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×