Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. apríl 2026 06:44 Lán ESB til handa Úkraínu hefur loksins verið samþykkt, eftir að Victor Orbán laut í lægra haldi í þingkosningum á dögunum. Getty Evrópusambandið gekk í gær frá 90 milljarða evra láni til Úkraínu, eftir að nýkjörinn stjórn í Ungverjalandi snéri ákvörðun Victor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra, um að beita neitunarvaldi gegn lánveitingunni.
Samhliða var gripið til frekari refsiaðgerða gegn rússneskum bönkum og orkufyrirtækjum, og fyrirtækjum í Kína, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Taílandi, sem sögð eru hafa aðstoðað Rússa við að komast undan þeim aðgerðum sem þegar voru í gildi. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði á samfélagsmiðlum í gær að á sama tíma og Rússar hefðu aukið árásir sínar á Úkraínu, væri Evrópusambandið að efla stuðning sinn við úkraínsku þjóðina. Von der Leyen sagði einnig í gær að hún gerði ráð fyrir að 45 milljarðar yrðu greiddir út á þessum ársfjórðungi, það er að segja fyrir júnílok. Fjármununum yrði meðal annars varið til innlendrar drónaframleiðslu. Vonir standa til að lánið muni sjá Úkraínumönnum fyrir tveimur þriðjuhlutum af fjárþörf sinni fyrir árin 2026 og 2027. Þá er gert ráð fyrir að endurgreiðsla lánsins verði fjármögnuð með skaða- og miskabótum af hálfu Rússa. Harry Bretaprins og hertogi af Sussex sagði í ræðu á öryggisráðstefnu í Kænugarði í gær að Bandaríkin ættu stjóran þátt í sögu þeirra átaka sem nú stæðu yfir, þar sem þau hefðu heitið því að tryggja að sjálfræði og landamæri Úktraínu yrðu virt eftir að Úkraínumenn samþykktu að gefa eftir kjarnorkuvopn sín. Hann sagði tímabært að Bandaríkin sýndu að þau virtu alþjóðlegar skulbindingar. Orð prinsins virðast hafa snert taug hjá Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði Harry ekki tala fyrir Bretland. „Ég held að ég tali frekar fyrir Bretland en hann... en ég kann að meta ráðleggingar hans,“ sagði Trump, sem mun taka á móti Karli III og Kamillu drottningu þegar þau hefja opinbera heimsókn sína til Bandaríkjanna á mánudag.
Úkraína Evrópusambandið Bandaríkin Donald Trump Bretland Kóngafólk Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira