„Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. apríl 2026 16:16 Ágúst Jóhannsson á von á erfiðu einvígi gegn FH. vísir/Anton Ágúst Jóhannsson segir Valsliðið sem hann þjálfar vera líkt FH að mörgu leyti og býst við æsispennandi úrslitaeinvígi milli liðanna í Olís deildinni í handbolta.
Aðeins einu stigi munaði á deildarmeisturum Vals og FH í Olís deildinni í vetur. Liðin unnu sitt hvorn útileikinn þegar þau mættust og Águst ber mikla virðingu fyrir FH. „Þeir eru auðvitað bara feykilega öflugir og vel mannaðir. Með unga og efnilega stráka, til dæmis Ómar [Darra Sigurgeirsson] og Garðar [Inga Sindrason] sem hafa verið mjög öflugir. Í bland við reynda og góða leikmenn. Þetta er ekkert ósvipuð blanda og er hjá okkur, þannig að ég held að það sé svakalegt einvígi framundan,“ sagði Ágúst á blaðamannafundi við bensínstöð Olís á miðvikudag. Þjálfarinn segir það líka enga tilviljun að þessi lið hafi verið best í Olís deildinni í vetur. „Bæði lið spila yfirleitt 6-0 varnarleik, eru með góða markverði og vilja keyra hraðaupphlaup. Bæði lið eru með mjög flinka og spræka stráka sóknarlega. Við spilum að mörgu leiti líkan bolta. FH-ingarnir eru sterkir og það er erfitt að eiga við þá. Þetta eru svipuð lið og spila bæði góðan handbolta.“ Ungir leikmenn beggja liða hafa slegið í gegn í úrslitakeppninni. Ofan nefndir FH-ingar hafa verið öflugir. Hjá Valsmönnum hefur Gunnar Róbertsson gert sig gildandi sóknarlega og fleiri ungir uppaldir leikmenn eru í liðinu. „Það er svolítið langt síðan að við vorum með svona marga uppalda í liðinu. Þannig að ég er mjög spenntur að sjá þá í þessu einvígi. Ég finn fyrir mikilli spennu í Valsheimilinu og á von á fullu húsi,“ sagði Ágúst. Klippa: Ágúst Jóhannsson ræðir úrslitaeinvígi Vals og FH
Olís-deild karla Valur FH Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira