Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. maí 2026 11:26 Olivia Rodrigo er ekki par sátt við það að fólk telji hana vera að barngera sig með klæðaburði sínum. Sú gagnrýni sé til marks um normalíseringu barnagirndar. Getty Poppstjarnan Olivia Rodrigo er vægast sagt ósátt við gagnrýni um að kjóllinn sem hún klæddist í tónlistarmyndbandi við lagið „Drop Dead“ geri hana barnslega. Tónlistarkonan telur slíka gagnrýni til marks um það hvernig barnagirnd er normalíseruð í menningunni.
Rodrigo, sem er einungis 23 ára, hefur farið sigurför um heiminn með síðustu tveimur plötum sínum, Sour (2021) og Guts (2023), og kemur þriðja breiðskífa hennar út í júní, You Seem Pretty Sad for a Girl So in Love. Fyrsta smáskífan af plötunni, „Drop Dead,“ kom út í apríl og fór efst á vinsældarlista víða um heim. Rodrigo gaf út tónlistarmyndband við lagið um miðjan apríl en það var tekið upp í Versalahöll í Frakklandi. Í myndbandinu klæddist tónlistarkonan annars vegar gömlum Simone Baron-míníkjól sem Jane Birkin klæddist í kynlífskómedíunni Catherine & Co. (1975) og hins vegar enn styttri kjól frá franska lúxusmerkinu Chloé. Tónlistarkonan hefur hlotið gagnrýni frá netverjum vegna síðarnefnda kjólsins og hún sögð vera barnsleg í honum. Rodrigo var spurð út í gagnrýnina í hlaðvarpinu Popcast hjá New York Times og svaraði hún rækilega fyrir sig. „Það sem er virkilega truflandi er að mér finnst ég hafa verið á sviði í fötum sem sýna mun meira. Ég hef verið á sviði í glansandi brjóstahaldara og stuttum stuttbuxum sem er minn réttur. Það er gaman, mér fannst ég töff og leið vel í því,“ sagði hún. „Það var ekki „óviðeigandi“ en ég í fullum klæðum í kjól sem fólki finnst vera barnslegur var „óviðeigandi“. Og mér finnst það sýna hvernig við höfum normalíserað barnagirnd í menningunni okkar,“ bætti hún við. Stúlkum kennt um viðbrögð annarra Poppstjarnan tengdi þennan hugsunarhátt líka við það hvernig konur eru aldar upp. „Það er þetta orðagjálfur sem við erum mataðar með frá því við erum litlar stelpur, sem er: „Ekki klæðast þessu því þá er karlmaður að fara að kyngera líkamann þinn og það er þér að kenna.“ Það er svo skrítið og mér fannst ég ekkert vera kynþokkafull í þessum kjól heldur,“ sagði hún. Hér má sjá kjólinn sem Rodrigo klæddist í myndbandinu. Rodrigo sagði ætlun sína með kjólnum hafa verið að vísa í tónlistarkonurnar Kathleen Hanna í Bikini Kill og Courtney Love í Hole sem gerðu það gott á tíunda áratugnum. „Ef við byrjum að klæðast á þann máta að við hugsum: „Ó, ég vil ekki að eitthvað viðundur haldi að ég sé kynþokkafull eins og barn,“ eða eitthvað annað klikkað, þá held ég að við séum búin að tapa þræðinum,“ sagði Rodrigo. Talaði söngkonan til yngri kvenna og stúlkna „Þú ættir ekki að bera ábyrgð á einhverjum gaur sem kyngerir þig á hátt sem þú ætlaðir þér aldrei,“ sagði hún.
Tónlist Hollywood Bandaríkin Tíska og hönnun Mest lesið Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Tónlist Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Gagnrýni Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Lífið Foreldrar sofa meira en margir halda Áskorun Aðalsteinn Bergdal er látinn Menning Mikil sorg á Alþingi Lífið Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Fleiri fréttir Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Kynþokkafullir með fortíðarþrá Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana DJ Krush á Extreme Chill Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Námið ekki eins krefjandi og á Tene Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Sjá meira