Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson og Anja Þórdís Karlsdóttir skrifa 29. maí 2026 23:03 Undanfarna daga hafa forsvarsmenn skotíþrótta og rekstraraðilar skotsvæðanna á Álfsnesi farið mikinn í fjölmiðlum og krafist þess að svæðin verði opnuð á ný strax. Umræðan hefur einkennst af miklum þrýstingi á stjórnmálamenn rétt fyrir kosningar. Það er þó mikilvægt að almenningur, kjörnir fulltrúar og frambjóðendur fái allar upplýsingar – ekki aðeins hlið rekstraraðila. Staðreyndin er sú að frá skotsvæðinu er gríðarleg hávaðamengun sem skerðir lífsgæði íbúa á stóru svæði umhverfis Álfsnes. Íbúar og landeigendur við Kollafjörð og á Kjalarnesi hafa ítrekað kært starfsemina. Starfsleyfi skotsvæðanna hafa ítrekað verið felld úr gildi – og það ekki að ástæðulausu. Nýjasti úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála staðfestir að rannsóknir og hávaðamælingar vegna starfseminnar voru ófullnægjandi. Hljóðmælingar á vegum rekstraraðila og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hafa í gegnum tíðina að mestu byggst á jafngildismælingum (meðaltali), sem endurspegla ekki staka skothvelli og hávaðatoppa. Sumar mælingar hafa einnig verið gerðar við aðstæður sem gefa takmarkaða mynd af raunverulegum áhrifum starfseminnar. Þetta hefur verið gagnrýnt fyrir að sýna ekki raunhæfa mynd af hávaðamengun. Óháður hljóðsérfræðingur, fenginn af íbúum til eftirlits, mældi hávaðatoppa allt að 90 dB frá skothríðinni, sem er langt yfir þeim mörkum sem teljast ásættanleg fyrir íbúðar- og landbúnaðarsvæði. Rekstraraðilar hafa haldið því fram að mikið hafi verið gert til að draga úr hávaða. Einangrun skothúsa hefur þó engin áhrif á hávaðann sem berst yfir Kjalarnes og Kollafjörð þegar skotið er bæði úr opnum skotbyrgi og á opnum skotvöllum. Við sem búum á svæðinu höfum ekki fundið fyrir breytingum á hávaða undanfarin ár (stutt myndband:https://youtube.com/shorts/aGOLF1KpNlg). Sérfræðingar hafa í nær tvo áratugi bent á að Álfsnes sé ein versta mögulega staðsetning fyrir skotíþróttir vegna hljóðburðar. Staðsetningin við sjávarsíðuna, þar sem sjávaryfirborðið er „glerharður gagnvart hljóðburði“, ásamt klettabeltum Esjunnar, veldur því að hljóð magnast upp verulega. Þrátt fyrir það hefur rekstrarleyfi svæðisins ítrekað verið framlengt án raunhæfra lausna. Fyrrverandi borgarstjóri, Einar Þorsteinsson, sagði á kosningafundi að erfitt væri að finna svæði þar sem „enginn vill þessa starfsemi til sín“. Við viljum benda á að til eru betri svæði innan og utan borgarmarka þar sem mun auðveldara væri að hljóðeinangra starfsemina og draga úr áhrifum á íbúa og útivistarfólk. Reykjavíkurborg lofaði fyrir löngu að finna nýtt svæði fyrir skotíþróttir. Í erindisbréfi Dagur B. Eggertssonar frá 13.01.2023 var stýrihópi falið að finna nýjan stað fyrir miðstöð skotíþrótta á höfuðborgarsvæðinu og sameina starfsemi skotfélaga á hentugri stað. Fordæmi er fyrir sameiginlegri aðstöðu eins og t.d. skíðasvæðin í Bláfjöllum. Málið hefur verið til umfjöllunar stjórnvalda í tæpa tvo áratugi og á þeim tíma hefur safnast upp mikið magn gagna sem sýnir óásættanlega stjórnsýslu. Á meðan Reykjavíkurborg þykist leita að nýjum stað og rekstraraðilar verja sína hagsmuni þurfa íbúar, landeigendur og hljóðsérfræðingar ítrekað að sæta því að dregið sé í efa málflutningur þeirra þegar við stígum fram í fjölmiðlum. Við getum ekki lengur búið við svona heilsuspillandi hávaða. Það væri einnig fróðlegt að vita hver, hvenær og hvernig á að hreinsa blýmengun úr fjörunni og sjónum við Djúpuvík, sem er mikilvæg sjófuglabyggð. Hér má sjá myndband úr fjörunni þar sem blýmengun kemur fram:https://vimeo.com/269401969/5871296220. Við íbúar við Kollafjörð og á Kjalarnesi köllum eftir ábyrgð. Við biðjum stjórnmálafólk að kynna sér málið út frá sjónarhóli þeirra sem búa við hávaðann dag eftir dag – ekki aðeins þeirra sem stunda starfsemina nokkrar klukkustundir í viku. Við vonum jafnframt að þetta mál verði ekki enn eitt „grænt gímald“ í sögu borgarinnar. Höfundar eru íbúar í nágrenni skotsvæðanna á Álfsnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skotvopn Skipulagsmál Reykjavík Deilur um skotsvæðið á Álfsnesi Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar