Innlent

Einn kærður fyrir stór­fellda líkams­á­rás

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ekki kemur fram hvar í Kópavogi árásin átti sér stað. Myndin er úr safni.
Ekki kemur fram hvar í Kópavogi árásin átti sér stað. Myndin er úr safni. Vísir/Anton Brink

Einn hefur verið kærður fyrir stórfellda líkamsárás í Kópavogi í gærkvöld eða nótt. Greint er frá í dagbók lögreglu en ekki kemur nánar fram um atvik eða þann sem er ákærður en einn er samkvæmt dagbók vistaður í fangageymslu eftir nóttina.

Í dagbók er einnig greint frá því að slys hafi orðið í strætisvagni í miðbænum og að einn hafi verið handtekinn fyrir ölvunarakstur í sama hverfi. Þá er greint frá skartgripaþjófnaði í Hafnarfirði og innbrot í Mosfellsbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×