Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Agnar Már Másson skrifar 21. júlí 2026 12:17 Hæstiréttur dæmdi tolla Trumps ólöglega í febrúar. Samsett Mynd Íslenska stoðtækjafyrirtækið Embla Medical, móðurfélag Össurar, fékk um 375 milljónir króna endurgreiddar vegna ólögmætra tolla Bandaríkjaforseta. Félagið bíður eftir enn frekari endurgreiðslu.
Samkvæmt nýbirtum ársfjórðungsreikningi fyrir annan ársfjórðung 2026 fékk Embla Medical, móðurfélag Össurar, um þrjár milljónir bandaríkjadala í endurgreiðslur fyrir tolla, sem nemur 375 milljónum króna. Það jafngildir um tíund af heildarhagnaði félagsins á ársfjórðungnum, en hagnaður félagsins jókst um 39 prósent miðað við sama ársfjórðung í fyrra. Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical, segir að félagið hafi samtals sótt um endurgreiðslu upp á fimm milljónir dala í kjölfar þess að hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi í febrúar að tollar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á vörur frá Íslandi væru ólögmætir. Hann segir að fyrirtækið bíði enn eftir að fá restina endurgreidda, sem verði vonandi síðar á árinu. „Og það kom núna í lok annars ársfjórðungs greiðsla upp á rúmar fjórar milljónir dollara. Þannig að þetta hefur nettó þriggja milljóna jákvæð áhrif í fjórðungnum þar sem við erum enn þá að borga ákveðna tolla undir öðru regluverki,“ segir Sveinn hjá Emblu Medical. Á síðasta ári greiddi fyrirtækið tæpar átta milljónir dollara í tolla. Sveinn fagnar jafnframt góðri niðurstöðu af ársfjórðungnum. Sala Emblu á öðrum ársfjórðungi nam um 32 milljörðum króna, og jafngildir 11 prósenta aukningu frá síðasta tímabili. „Reksturinn er í grunninn góður, með góðum vexti og kostnaði haldið í skefjum þrátt fyrir verðbólgu og áhrif á virðiskeðjuna vegna hækkunar á olíuverði,“ segir Sveinn, sem telur framtíðarhorfur félagsins góðar. „Okkar hlutverk er í grunninn að búa til lausnir fyrir einstaklinga sem þurfa allt sitt líf á okkar vörum og þjónustu að halda. Þannig búum við til virði fyrir heilbrigðiskerfið og fyrir notendurna sjálfa með því að gera fólki kleift að lifa sínu lífi og hreyfa sig betur og meira og það lækkar kostnað fyrir heilbrigðiskerfið.“ Engu að síður vill hann meina að heilbrigðiskerfi heimsins, sérstaklega í Evrópu, standi frammi fyrir áskorunum, svo sem öldrun sem hafi tilheyrandi áhrif á heildarkostnað við rekstur heilbrigðiskerfa.
Embla Medical Skattar, tollar og gjöld Donald Trump Bandaríkin Heilbrigðismál Kauphöllin Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira