Lífið

Leik­konan Bunny Levine er látin

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Bunny Levoine flutti 74 ára að aldri til Hollywood til að uppfylla bernskudrauminn um að starfa sem leikkona.
Bunny Levoine flutti 74 ára að aldri til Hollywood til að uppfylla bernskudrauminn um að starfa sem leikkona. Getty

Leikkonan og bókasafnsvörðurinn Bunny Levine er látin, 97 ára að aldri. Hún lést í svefni á heimili sínu í Tarzana í Kaliforníuríki á fimmtudaginn. 

Levine var þekktust fyrir hlutverk sín í þáttunum Gilmore Girls og kvikmyndinni La La Land frá árinu 2016 með Emmu Stone og Ryan Gosling í aðalhlutverkum. 

Levine fæddist 22. desember 1928 í East Orange í New Jersey. Hún starfaði sem bókasafnsvörður og kennari í New Jersey í um tuttugu og fimm ár áður en að hún hóf feril sinn í Hollywood. Eftir andlát eiginmans síns, árið 2003, flutti hún til Los Angeles og uppfyllti æskudraum sinn um að starfa við leiklist, þá 74 ára gömul.

Í þáttunum Gilmore Girls, um mægðurnar Lorelai og Rory, fór Levine með hlutverk Frú Thompson. Einnig kom hún fram í hinum ýmsu þáttum á borð við Everybody loves Raymond, New Girl, 2 Broke Girls og Law & Order. Hennar síðasta kvikmyndahlutverk var í kvikmyndinni The Cure sem kom út fyrr á þessu ári. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.