Innlent

Sam­þykktu að slíta kjara­samningum

Agnar Már Másson skrifar
„Það er erfitt að vera í samningaviðræðum og vera einn um það að leita lausna,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
„Það er erfitt að vera í samningaviðræðum og vera einn um það að leita lausna,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Vísir/Anton Brink

Stjórn VR hefur ákveðið að slíta kjarasamningum á morgun. Formaðurinn segir að samningar myndu þá renna út í lok mánaðar en þetta geti haft í för með sér að opinberu stéttarfélögin megi einnig segja upp sínum samningum.

„Ég var með fund í stjórn VR í kvöld þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi.

VR hefur ásamt LÍV og fagfélögunum staðið í kjaradeilu síðustu daga vegna forsendubrests kjarasamninga en frestur til að slíta samningunum rennur út klukkan 16 á morgun, fimmtudag.

Halla nefnir að eftir því sem næst verði komist séu Samtök atvinnulífsins á leiðinni á árshátíð á morgun, eins og greint hefur verið frá, en sömuleiðis kveðst hún ekki skynja vilja af hálfu samtakanna til að koma til móts við stéttarfélögin.

Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, segir að bæði hann og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri, verði á staðnum á morgun og til viðræðna.

„Við erum búin að teygja okkur gríðarlega langt,“ bætir hún við og nefnir að VR hafi boðið fram „hlaðborð af lausnum“ til þess að komast til móts við kröfur SA en að samtökin hafi ekki sýnt sömu viðleitni á móti. Jafnframt segir hún að ríkisstjórnin hafi einnig teygt sig langt og jafnvel einstaka aðildarfyrirtæki innan SA.

„Það er erfitt að vera í samningaviðræðum og vera einn um það að leita lausna.“

Hún gerir ráð fyrir því að kjarasamningum verði sagt upp á morgun en ef af því verður gætu uppsagnarheimildir sömuleiðis virkjast hjá opinberu stéttarfélögunum.

Samningarnir muni renna gildi 31. október og þá taki við ný lota kjaraviðræðna þar sem Halla segist munu fara fram á mun stærri kröfur.

„Þá er allt undir,“ bætir hún við.

Halla segir að VR hafi síðast fundað með SA fyrir hádegi og en að fundir með samtökunum hafi upp til hópa verið stuttir og að litlu leyti snúist um að finna lausn á deilunni.

Þó að SA hafi ekki verið formlega upplýst um ákvörðun stjórnar VR að svo stöddu segir Halla að samtökunum ætti að vera ljóst að þetta væri staðan.

„Við erum opin fyrir lausnamiðuðu samtali og það stendur ekki í okkur að finna lausnir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×