Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 19. október 2026 08:17 Vladimír Pútín hefur lagt til að hann fundi með þeim Donald Trump og Xi Jinping í næsta mánuði. Þá ræði þeir meðal annars örlög Úkraínu. EPA Vladimír Pútín hefur lagt til við Donald Trump að þeir og Xi Jinping komi saman í næsta mánuði og ræði hvernig binda eigi enda á stríðið í Úkraínu. Pútín er sagður vilja nýta bætt samband sitt og Trumps og versnandi samband Trumps og Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu. Þessar vendingar hafa leitt til mikilla áhyggja í Evrópu og í Úkraínu, sem munu ekki eiga fulltrúa á fundinum, verði af honum.
Pútín er sagður sjá fundinn fyrir sér sem nýja Jaltaráðstefnu, þar sem þáverandi leiðtogar heimsins ræddu skiptingu heimsins eftir seinni heimsstyrjöldina. Selenskí segir að Trump sé að þrýsta á Úkraínumenn og reyna að þvinga þá til að gefast upp fyrir Rússum. Pútín lagði fundinn til í símtali við Trump þann 9. október en þá ræddu forsetarnir einnig kaup Bandaríkjamanna á díselolíu frá Rússlandi og niðurfellingu á refsiaðgerðum gegn Rússum, sem Trump opinberaði skömmu síðar. Fundurinn yrði haldinn á hliðarlínum fundar efnahagssamvinnu Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC) í Kína í næsta mánuði. Hann fer fram í Shenzen helgina 18. og 19. nóvember. Þetta hafa blaðamenn Wall Street Journal eftir heimildarmönnum í Rússlandi og í Bandaríkjunum og hafa þeir einnig eftir Dmítrí Peskóv, talsmanni Pútíns, að viðræður um mögulegan leiðtogafund séu yfirstandandi. Rússneskir erindrekar eru fyrst sagðir hafa lagt þetta til við kínverska erindreka sem sögðust tilbúnir til fundarhalda, svo lengi sem Trump væri einnig samþykkur. Kínverjar hafa stutt Rússa við innrásina í Úkraínu. Háttsettur bandarískur embættismaður sagði að Trump hefði ekki samþykkt að mæta á fundinn en hann gæti gert það, þar sem hann vilji binda enda á stríðið í Úkraínu. Kennir Selenskí um hátt eldsneytisverð Trump hefur á undanförnum dögum lagt mikla áherslu á að kenna árásum Úkraínumanna á rússneska orkuvinnsluinnviði um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum og um heiminn allan. Það sé ekki stríði hans gegn Íran og meðfylgjandi truflunum á flutningum olíuafurða frá Mið-Austurlöndum að kenna en kannanir vestanhafs benda til þess að hátt verðlag muni koma sérstaklega mikið niður á Repúblikönum í þingkosningum sem haldnar verða þar þann 3. nóvember. Sérfræðingar í þessum málum eru þó sammála um að stríðið gegn Íran spili mun stærri rullu í háu eldsneytisverði í heiminum en árásir Úkraínumanna. Sjá einnig: Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Trump hefur þrýst mjög á Selenskí og Úkraínumenn. Hann hefur meðal annars kallað eftir kosningum í Úkraínu og sagt að það sé Selenskí sem standi í vegi friðar en ekki Pútín. Þá hefur Trump farið með ósannindi um Selenskí og stríðið í Úkraínu, sambærileg þeim sem Rússar hafa lengi haldið fram. Selenskí hefur lýst því yfir að Úkraínumenn séu viljugir til að hætta árásum á olíuvinnslur í Rússlandi, ef Rússar hætti árásum á orkuinnviði í Úkraínu. Úkraínumenn gerðu ekki árásir á rússneskar olíuvinnslur í þrjá daga eftir að Trump lýsti einhliða yfir vopnahléi en Rússar létu sprengjum rigna yfir Úkraínu og á úkraínsk orkuver á þeim þremur dögum. Þrátt fyrir stórar yfirlýsingar er lítið sem Trump hefur gert til að reyna að stilla til friðar, annað en að reyna að þvinga Úkraínumenn til að verða við kröfum Rússa. Þetta gerist á sama tíma og Rússum vegnar mjög lítið á víglínunni í Úkraínu. Í samtali við WSJ segir einn bandarískur embættismaður að Trump hafi ákveðið að slaka á refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna þess að hann hafi ekki séð aðrar góðar leiðir til að reyna að lækka eldsneytisverð. Trump-liðar hafa ekki farið leynt með það að þetta sé til komið vegna kosninganna í næsta mánuði. Ný Jaltaráðstefna? Ráðamenn í Moskvu sjá fundinn í Kína sem tækifæri til að festa stöðu Rússlands sem ráðandi heimsveldi í sessi. Það hefur verið eitt af markmiðum Pútíns frá því hann tók við völdum í Rússlandi árið 2000. Verði af fundinum verður hann einnig enn einn fleygurinn milli Bandaríkjanna og Evrópu, en það að slíta Bandaríkin frá Evrópu hefur einnig lengi verið markmið Pútíns og Rússa. Einn heimildarmanna WSJ í Rússlandi, sem er fyrrverandi starfsmaður rússneskrar leyniþjónustu, segir Pútín sjá fyrir sér fundinn sem nýja Jaltaráðstefnu. Það var sögulegur fundur Franklin D. Roosevelt, Bandaríkjaforseta, Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands, og Jósefs Stalín, leiðtoga Sovétríkjanna, og skipulögðu þeir þá hvernig heimsmálunum skyldi háttað eftir seinni heimsstyrjöldina. Fundurinn í Kína er einnig líklegur til að valda áhyggjum í ríkjum Asíu, eins og Taívan, Japan og Suður-Kóreu. Telur Trump reyna að fá Úkraínu til að gefast upp Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir í nýju viðtali við Bloomberg að hann telji að Trump ætli sér að þrýsta á Úkraínumenn til að gefast upp fyrir Rússum. Meðal annars vísar hann til þess að Bandaríkjamenn hafi sett takmarkanir á notkun Starshield-móttökustöðva í Úkraínu. Það er sérstök þjónusta SpaceX, sambærileg Starlink-gervihnattanetinu, en er ætluð til notkunar í hernaði. Notkun Úkraínumanna á Starshield hefur verið fjármögnuð af bakhjörlum þeirra í Evrópu en henni er stýrt af varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Þessar takmarkanir hafa meðal annars komið niður á vörnum Úkraínumanna gegn rússneskum sjálfsprengidrónum. Elon Musk, forstjóri SpaceX, vísaði fyrst á yfirvöld í Bandaríkjunum þegar hann var spurður út í takmarkanirnar en að öðru leyti hefur enginn viljað segja hvernig þessi ákvörðun var tekin. Telegraph sagði frá því á dögunum að Musk hefði fyrst nálgast Trump og lagt takmarkanirnar til og Trump hefði samþykkt þær. Selenskí vísar einnig til þess að Bandaríkjamenn hafa einnig tafið afhendingu flugskeyta í Patriot-loftvarnarkerfi Úkraínumanna. Þau flugskeyti eru gífurlega mikilvæg Úkraínumönnum þar sem þau eru nánast eina leið þeirra til að verjast rússneskum skotflaugum, sem Rússar hafa skotið í miklum fjölda á Úkraínu á undanförnum dögum. Umrædd flugskeyti er búið að borga fyrir í gegnum hið svokallaða PURL-verkefni NATO, sem Íslendingar taka þátt í að fjármagna, en hafa ekki fengist afhent. „Ég tel að búið sé að taka skref sem eigi að sannfæra Úkraínumenn um að verða við kröfum Rússa,“ sagði Selenskí í viðtalinu. Úkraínumenn segja að sextán skotflaugum hafi verið skotið að Kænugarði og nærliggjandi bæjum í nótt og að Rússar hafi einnig notast við rúmlega tvö hundruð sjálfsprengidróna. Selenskí segir að engin viðvörun um skotflaugarnar hafi borist frá bandamönnum Úkraínu. Þar á hann við Bandaríkjamenn en undanfarna daga hafa Úkraínumenn vakið athygli á því að viðvaranir sem komu gjarnan fyrir eða skömmu eftir öll skotflaugaskot Rússa hafi ítrekað ekki borist. Overnight, Russia launched 16 ballistic missiles at Kyiv and the Kyiv region, and more than 200 drones, including jet-powered Shaheds, across Ukraine. Energy facilities were the main target, but a clinic, a school, a metro station and homes were also hit. There are casualties. At least 550,000 families lost power. Ukraine has said yes to every ceasefire proposal. Russia keeps answering with missiles.— Defense of Ukraine (@DefenceU) October 19, 2026 Hann sagðist ekki vilja trúa því að Bandaríkjamenn teldu það auðveldustu leiðina til að binda enda á stríðið, að enda það á kostnað Úkraínu. Þannig væri þó útlitið. Hann sagðist vonast til þess að samband ríkjanna gæti skánað aftur eftir þingkosningarnar í næsta mánuði. „Stjórnmál eru mjög hörð á kosningatímum,“ sagði hann. „Mér finnst ástandið kvalafullt núna, en lífið heldur áfram eftir kosningar og ég tel að þá muni ró færast yfir.“
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Vladimír Pútín Bandaríkin Donald Trump Kína SpaceX Tengdar fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Bandaríkjaforseti segir að vilji Úkraínuforseta til að binda enda á stríðið milli Úkraínu og Rússlands sé enginn og að lög um refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum gætu hrakið þá frá samningaborðinu. 18. október 2026 21:47 Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni. 16. október 2026 22:03 Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Skipun um að að hægja á gervihnattakerfinu Starshield í Úkraínu kom innan úr Hvíta húsinu. Þetta kemur fram í frétt Reuters sem vísar í heimildir frá bandarískum og vestrænum embættismönnum sem fengu upplýsingar um málið. 16. október 2026 07:14 Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars. 15. október 2026 10:33 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ekið á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Bandaríkjaforseti segir að vilji Úkraínuforseta til að binda enda á stríðið milli Úkraínu og Rússlands sé enginn og að lög um refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum gætu hrakið þá frá samningaborðinu. 18. október 2026 21:47
Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni. 16. október 2026 22:03
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Skipun um að að hægja á gervihnattakerfinu Starshield í Úkraínu kom innan úr Hvíta húsinu. Þetta kemur fram í frétt Reuters sem vísar í heimildir frá bandarískum og vestrænum embættismönnum sem fengu upplýsingar um málið. 16. október 2026 07:14
Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars. 15. október 2026 10:33