Danmörk

Danmörk

Höfuðborg: Kaupmannahöfn. Mannfjöldi: 6,0 milljónir (2025). Flatarmál: 43.094 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ók inn í hús og varð konu á sjö­tugs­aldri að bana

Tvítugur karlmaður er ákærður fyrir manndráp af gáleysi fyrir að aka bíl sínum á miklum hraða á íbúðarhús nærri Árósum með þeim afleiðingum að kona á sjötugsaldri lést. Áreksturinn varð eftir að ökumaðurinn reyndi að flýja lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans

Danski barnabókahöfundurinn Ole Lund Kirkegaard lést langt fyrir aldur fram árið 1979 eftir að hafa gefið út níu barnabækur á tólf ára ferli. Nú tæpri hálfri öld síðar er von á nýrri bók eftir höfundinn: Kalli og Kapteinn Skipper. Óklárað handrit bókarinnar fannst fyrir 35 árum síðan og ákvað Nana Bang Kirkegaard, dóttir höfundarins, svo að ljúka við það.

Menning
Fréttamynd

Séra Guðni Már kveður Ís­land

Séra Guðni Már Harðarson hefur verið ráðinn sendiráðsprestur í Danmörku og prestur við íslenska söfnuðinn þar í landi. Hann hefur verið áberandi innan kirkjunnar og jarðsöng til að mynda tónlistarmanninn Björgvin Halldórsson og Bryndísi Klöru Birgisdóttur sem lést af sárum sínum eftir hnífstunguárás á Menningarnótt árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Danska lög­reglan komin með nóg af drukknum börnum

Dönsk lögregluyfirvöld eru komin með nóg af hegðun drukkinna ungmenna í Árósum, þá sérstaklega í tívolíi borgarinnar á föstudagskvöldum. Framkvæmdastjóri tívolísins segist taka undir með áhyggjum lögregluyfirvalda en segir ekki á dagskránni að hækka aldur þeirra sem hleypt er inn í tívolíið.

Erlent
Fréttamynd

Miðvinstristjórn mynduð í Dan­mörku

Danir fá nýja ríkisstjórn rúmlega tveimur mánuðum eftir kosningar. Mette Frederiksen starfandi og væntanlega tilvonandi forsætisráðherra greindi frá þessu síðdegis í dag.

Erlent
Fréttamynd

SAS fellir niður allt flug til Græn­lands

Skandinavíska flugfélagið SAS hefur óvænt fellt niður alla flugáætlun sína í sumar milli Danmerkur og Grænlands. Félagið segir ástæðurnar vera hærra eldsneytisverð og minni eftirspurn.

Erlent
Fréttamynd

Funduðu enn og aftur um Græn­land

Fulltrúar Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur hittust í gær í Washington DC á leynilegum samningafundi um Grænland og samskipti ríkjanna en samkvæmt danska ríkisútvarpinu er um að ræða enn einn fundinn á þessu ári þar sem fulltrúarnir hittast til að ræða málefni landsins.

Erlent
Fréttamynd

Margrét Þór­hildur aftur inn á sjúkra­hús

Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn eftir að sneiðmyndataka leiddi í ljós mikla blóðsöfnun á mjaðmasvæði hennar. Um er að ræða afleiðingu falls, að því er fram kemur í tilkynningu frá konungshirðinni. Þetta er í annað sinn í mánuðinum sem Margrét er lögð inn á sjúkrahús.

Erlent
Fréttamynd

Borgara­leg stjórn virðist úr sögunni

Lars Løkke Rasmussen styður ekki hægristjórn undir forystu Troels Lund Poulsens formanns Venstre. Þeir áttu fund í dag sem lauk með því að ljóst var að Troels Lund yrði að skila stjórnarmyndunarumboðinu.

Erlent
Fréttamynd

Jarð­skjálfti skók Kaup­manna­höfn

Jarðskjálfti reið yfir Kaupmannahöfn um klukkan 14:15 en jarðskjálftar eru afar fátíðir þar í borg. Íslendingar í Kaupmannahöfn sem fréttastofa hefur rætt við segja borgarbúum nokkuð brugðið.

Erlent
Fréttamynd

Venstre vill minni­hluta­stjórn í Dan­mörku

Troels Lund Poulsen formaður danska hægriflokksins Venstre vill mynda minnihlutastjórn með Íhaldsflokknum og Frjálslynda bandalaginu. Hann segir það besta valmöguleikann í núverandi stöðu enn sögulegt þrátefli hefur verið í stjórnarmyndunarviðræðum eftir þingkosningarnar sem fóru fram í mars.

Erlent
Fréttamynd

Til Ís­lands fyrir náttúruna en fann ástina og nýja vinnu

Cathrine Frederiksen flutti til Íslands fyrir um fimm árum. Eftir aðeins fjóra mánuði var hún komin með nýja vinnu, nýtt heimili og nýjan kærasta. Hún segir það algjöran draum að flytja til Íslands og lærði íslensku áður en hún flutti hingað. Hún hefur sérhæft sig í samfélagsmiðlum og starfar fyrir Digido.

Lífið