Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Íslenski landsliðmarkvörðurinn í fótbolta, Telma Ívarsdóttir, er gengin í raðir ítalska félagsins Inter á láni frá Rangers út yfirstandandi tímabil. Fótbolti 5.2.2026 11:40
„Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Eftir meiðslum hrjáð ár úti í atvinnumennskunni er Bryndís Arna Níelsdóttir komin aftur heim og gengin í raðir ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks. Hvalreki fyrir Blika komist hún aftur á beinu brautina eins og hún stefnir á að gera. Íslenski boltinn 1.2.2026 23:03
Berglind Björg ólétt Markadrottning síðasta tímabils í Bestu deild kvenna, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, er ólétt og á von á sínu öðru barni. Íslenski boltinn 26.1.2026 21:20
Breytingar hjá Breiðabliki Atvinnumaðurinn fyrrverandi Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðabliki. Hann tekur við starfinu nú þegar Alfreð Finnbogason, sem var titlaður tæknilegur ráðgjafi hjá Breiðabliki, er orðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg. Íslenski boltinn 16. janúar 2026 13:03
Blikar farnir að fylla í skörðin Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur komist að samkomulagi við bandaríska miðjumanninn Katelyn Duong, um að hún leiki með liðinu á komandi leiktíð. Meistararnir hafa misst stóran hóp sterkra leikmanna. Íslenski boltinn 14. janúar 2026 16:44
Breiðablik leitar að leikmönnum en reglur UEFA flækja málin Mikið hefur kvarnast úr Íslandsmeistaraliði Breiðabliks frá síðasta tímabili. Minna en mánuður er til stefnu fram að næsta einvígi í Evrópubikarnum og þar gætu Blikarnir þurft að mæta fáliðaðir. Fótbolti 14. janúar 2026 07:30
Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Kristín Dís Árnadóttir hefur framlengt samning sinn við Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks í fótbolta. Íslenski boltinn 12. janúar 2026 22:31
KR ekki í teljandi vandræðum með að tryggja sig í undanúrslit KR komst nokkuð þægilega í undanúrslit VÍS bikars karla í körfubolta með öruggum sigri á Breiðabliki í átta liða úrslitunum. Lokatölur 102-72 sigur KR. Körfubolti 12. janúar 2026 20:57
Enn einn Bliki kveður Kópavoginn: Áslaug Munda semur við Parma Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er gengin til liðs við Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta en hún kemur til félagsins frá Breiðabliki. Fótbolti 12. janúar 2026 11:58
Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Jón Guðni Fjóluson mun aðstoða Ólaf Inga Skúlason við þjálfun karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Íslenski boltinn 9. janúar 2026 16:23
Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Þrír af öflugustu sóknarleikmönnum Íslandsmeistara Breiðabliks í kvennafótboltanum eru horfnir af braut og reyna fyrir sér í atvinnumennsku. Besta lið Bestu deildar kvenna þarf því að fylla í stór skörð næsta sumar. Íslenski boltinn 9. janúar 2026 15:17
Birta eltir ástina og semur við Genoa Birta Georgsdóttir er gengin til liðs við Genoa á Ítalíu frá Íslandsmeisturum Breiðabliks. Hún mun því spila fyrir sama lið og kærasti sinn, landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson. Íslenski boltinn 8. janúar 2026 17:02
Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Breiðablik ætlar heldur betur að bæta aðstöðuna fyrir meistaraflokka félagsins í fótboltanum fyrir næsta sumar. Íslenski boltinn 8. janúar 2026 12:00
Alfreð hættur hjá Breiðabliki Alfreð Finnbogason hefur látið af störfum sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar Breiðabliks og mun vitja nýrra ævintýra hjá Rosenborg í Noregi. Íslenski boltinn 7. janúar 2026 16:13
Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar Ian Jeffs er tekinn við Íslandsmeistaraliði Breiðabliks í kvennafótbolta og hann er nú búinn að setja saman þjálfarateymi sitt fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna. Íslenski boltinn 3. janúar 2026 16:30
„Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Damir Muminovic sá öðruvísi endalok fyrir sér á ferlinum hjá Breiðabliki en skilur sáttur við félagið sem hann elskar af öllu sínu hjarta. Hann var líka snöggur að finna sér nýjan samastað. Íslenski boltinn 31. desember 2025 10:31
Beint frá Blikum til Boston í bandarísku deildinni Sammy Smith hefur fundið sér nýtt lið eftir tvö frábær ár á Íslandi en knattspyrnukonan snjalla samdi við Boston Legacy í bandarísku NWSL-deildinni. Fótbolti 29. desember 2025 18:07
Enn kvarnast úr liði Blika Markvörðurinn Kyla Burns hefur yfirgefið Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks í fótbolta. Hún er þriðji leikmaðurinn sem yfirgefur félagið eftir tímabilið. Íslenski boltinn 28. desember 2025 22:33
Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Arnór Ingvi Traustason segist hafa heyrt frá einhverjum íslenskum liðum áður en hann samdi við KR en þó hvorki Breiðabliki né Víkingi. Íslenski boltinn 24. desember 2025 16:01
Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Hinn átján ára Jónatan Guðni Arnarsson er genginn í raðir Breiðabliks frá sænska liðinu Norrköping. Íslenski boltinn 21. desember 2025 15:21
Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Breiðablik var í 44. sæti yfir þau félagslið sem fengu hæstu fjárhæðina vegna þátttöku leikmanna á EM kvenna í fótbolta í Sviss í sumar. Alls fengu þrjú íslensk félög tæplega 18,5 milljónir króna. Fótbolti 19. desember 2025 17:03
Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Strasbourg vann 3-1 heimasigur á Breiðabliki í síðasta leik þeirra síðarnefndu í Sambandsdeild Evrópu þetta árið. Fótbolti 18. desember 2025 22:15
„Við þurfum bara að keyra á þetta“ Breiðablik þarf að sækja sigur gegn taplausa toppliðinu Strasbourg í kvöld til að eiga möguleika á því að komast áfram í umspil fyrir sextán liða úrslit Sambandsdeildarinnar. Fótbolti 18. desember 2025 16:03
Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Breiðablik hefur með árangri sínum til þessa í Evrópukeppnum karla og kvenna í fótbolta í ár tryggt sér 800 milljónir króna í verðlaunafé. Upphæðin gæti hækkað um tæpar 130 milljónir í kvöld ef Blikar framkalla kraftaverk í Frakklandi með því að vinna Strasbourg. Fótbolti 18. desember 2025 11:00