Vöruskemma við Álfabakka

Fréttamynd

Ann­markar á fleiri en einu stigi málsins

Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) telur að annmarkar hafi verið á stjórnsýslu- og leyfisferlum í tengslum við uppbyggingu vöruskemmu við Álfabakka, „græna gímaldinu“ svokallaða. Úttektin var kynnt á fundi borgarráðs í morgun.

Innlent
Fréttamynd

„Varð að mar­tröð“

Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi segir tölvupóstasamskipti milli sín og annarra ráðamanna í Reykjavíkurborg staðfesta það að hún hafi aldrei verið hlynnt „Græna gímaldinu“ sem risið hefur við Álfabakka. Hún segir framkvæmdina hafa breyst í „martröð.“

Innlent
Fréttamynd

Græna gímaldið ljótast

Niðurstöður liggja fyrir í kosningu Arkitektúruppreisarinnar, áhugamannahóps um framtíð arkitektúrs, um nýbyggingu ársins, bæði þá fallegustu og ljótustu. Græna gímaldið við Álfabakka 2a var valin ljótasta nýbyggingin og Hafnarstræti 75 á Akureyri sú fallegasta.

Menning
Fréttamynd

Langt í frá að málinu sé lokið

Búseti íhugar alvarlega að leita réttar síns fyrir dómstólum til að verja hagsmuni íbúa félagsins við Árskóga. Félagið lítur enda svo á að enn séu uppi álitamál þrátt fyrir niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sem hafnaði kröfum Búseta um að vöruskemman alræmda í Álfabakka yrði rifin.

Innlent
Fréttamynd

Vænta þess að eig­endur hússins leysi málið

Forstjóri Haga segir stöðvun framkvæmda við Álfabakka 2 að hluta hafa áhrif á áform félagsins um flutning hluta starfsemi þess í húsnæðið. Hagar geri ráð fyrir því að eigendur hússins vinni að úrlausn málsins og lausn finnist sem allir geti fellt sig við.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmdir stöðvaðar að hluta

Framkvæmdir við Álfabakka 2A, þar sem unnið er að byggingu „græna gímaldsins“ svokallaða, hafa verið stöðvaðar að hluta af byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Nánar tiltekið hafa framkvæmdir við fyrirhugaða kjötvinnslu á jarðhæð hússins verið stöðvaðar vegna skorts á mati á umhverfisáhrifum.

Innlent
Fréttamynd

Borgar­stjóri tók við tæp­lega 3000 undir­skriftum vegna Álfa­bakka

Íbúar í Árskógum 7, fjölbýlishúsi Búseta sem er við hliðina á „græna gímaldinu“ svokallaða í Breiðholti, afhentu borgarstjóra undirskriftalista í íbúð formanns húsfélagsins í dag. Þeir sem rita undir vilja að framkvæmdir við húsið verði stöðvaðar og undirskriftir eru vel á þriðja þúsund.

Innlent
Fréttamynd

Kæra lögð fram vegna grænu skemmunnar

Búseti hefur lagt fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna grænu vöruskemmunar við Álfabakka 2. Í kærunni er farið fram á að framkvæmdirnar verði stöðvaðar. Niðurstöðu er að vænta innan fárra vikna.

Innlent
  • «
  • 1
  • 2