Bréf í Atlas hækka 5. ágúst 2006 07:45 Magnús Þorsteinsson í Avion Group Hlutabréf í Atlas Cold Storage standa nú í 7,60 dölum á hlut í Kauphöllinni í Toronto. Tilboð Avion Group hljóðar upp á sjö kanadadali á hlut.
Hlutabréf í kanadíska kælifyrirtækinu Atlas Cold Storage hækkuðu um rúm tuttugu prósent í Kauphöllinni í Toronto í kjölfar fregna af væntanlegu yfirtökutilboði Avion Group. Viðskipti með bréf í félaginu námu rúmum sjö milljörðum kanadadala. Tilboðið er gert fyrir hönd Eimskip Atlas Canada, dótturfélags Avion Group. Bréf í félaginu standa nú í 7,60 kanadadölum á hlut, eða sem nemur tæpum 480 íslenskum krónum. Tilboð Avion hljóðaði upp á sjö dali á hlut og er þá miðað við að markaðsvirði Atlas Cold Storage sé rúmir 37 milljarðar króna. Eimskip Atlas Canada hafa nú þegar gert hluthafasamkomulag við tvo stóra hluthafa í Atlas Cold Storage sem tryggir þeim um 13,9 prósent hlutafjár í félaginu. Stjórn Atlas mun koma saman á næstunni og íhuga tilboð Avion Group. Niðurstaðan verður síðan kunngjörð í yfirlýsingu, sagði í tilkynningu frá stjórn Atlas Cold Storage. Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, sagði að tilboðið væri sanngjarnt en það væri hluthafa að meta hvort gengið yrði að því. Mjög rólegt var yfir bréfum í Avion Group í Kauphöll Íslands á föstudagsmorgun.
Viðskipti Mest lesið Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Viðskipti erlent Að líða ömurlega í andrúmslofti jákvæðrar sálfræði Atvinnulíf Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Neytendur Stöðug eftirfylgni er grundvallaratriði Viðskipti innlent Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Björgvin Ingi til Deloitte Viðskipti innlent Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Viðskipti innlent Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Sjá meira