Elín Metta og Sandra María bættu met Margrétar Láru Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2012 07:00 Elín Metta Jensen. Mynd/Vilhelm
Elín Metta Jensen og Sandra María Jessen tryggðu sér um helgina markadrottningartitilinn í Pepsi-deild kvenna og settu um leið nýtt met því aldrei hafa yngri leikmenn orðið markahæstar í efstu deild kvenna. Báðir eru þær sautján ára gamlar og skoruðu hvor um sig átján mörk í átján leikjum í deildinni í sumar. Þær stöllur bættu þar með báðar met Margrétar Láru Viðarsdóttur sem var átján ára gömul þegar hún varð markahæsti leikmaður úrvalsdeildar kvenna sumarið 2004. Margrét Lára skoraði þá 23 mörk í fjórtán leikjum með ÍBV. Margrét hafði þarna bætt tíu ára gamalt aldursmet Olgu Færseth um tíu mánuði en Olga varð markadrottning árið 1994. Elín Metta spilaði 124 mínútur skemur en Sandra María í sumar og fær því gullskóinn en Sandra fær silfurskóinn í viðbót við það að verða Íslandsmeistari með Þór/KA. Elín Metta er rúmum mánuði yngri en Sandra og eignast því auk gullskósins líka metið yfir yngstu markadrottningu úrvalsdeildar kvenna frá upphafi. Það verður engin Margrét Lára í leikjunum við Norður-Íra og Norðmenn og því gæti íslenska landsliðið þurft að treysta á þessar ungu stelpur til að hjálpa liðinu að komast inn á EM næsta sumar.Sandra María JessenMynd/DaníelYngstu markadrottningar: Elín Metta Jensen, Val 2012 (17 ára - 6 mánaða - 7 daga) Sandra María Jessen, Þór/KA 2012 (17-7-21) Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV 2004 (18-1-11) Olga Færseth, Breiðablik 1994 (18-11-3) Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 2005 (19-1-10) Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki 1995 (19-2-2) Ásta Benediktsdóttir, ÍA 1989 (20-0-30) Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 2006 (20-1-9) Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Breið. 1981 (20-3-8) Ásthildur Helgadóttir, Breiðabl. 1996 (20-4-11)
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport „Spennið núna beltin áhorfendur góðir, þetta er svakalegt“ Sport Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira