Bandarísku háskólameistararnir buðu Elínu Mettu skólastyrk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2015 08:30 Elín Metta Jensen í leik með 23 ára landsliðinu á dögunum. Vísir/Ernir
Landsliðskonan Elín Metta Jensen mun fylgja í fótsport Dagnýjar Brynjarsdóttur og Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur og spila með bandarísku háskólameisturunum í Florida State en þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Elín Metta hefur gert munnlegt samkomulag við skólann en Dagný og Berglind hjálpuðu liðinu að vinna háskólatitilinn í desember. Dagný hefur klárað sitt nám en Elín Metta mun spila með Berglindi. „Þetta er frábært tækifæri fyrir fótboltakonu - að fá styrk til náms og spila fyrir þetta lið. Þetta er stökkpallur út í atvinnumennskuna enda er fótboltinn tekinn mjög alvarlega þarna og allt gert til þess að bæta leikmenn. Eftir dvölina þarna er maður betur tilbúinn að taka næsta skref," segir Elín Metta Jensen metnaðarfull í samtali við Sindra Sverrisson í Morgunblaðinu í dag. Þetta eru samt ekki alltof góðar fréttir fyrir Valsmenn því þetta þýðir að Elín Metta missir af enda tímabilsins næstu fjögur árin. „Það væri kannski sniðugt að endurskoða mótafyrirkomulagið eitthvað svo hægt sé að koma til móts við þá sem vilja fara til Bandaríkjanna en ég veit ekki hvort það er hægt. Það vilja margir nýta sér þetta tækifæri en ég er viss um að margir hætta líka við vegna þess að tímabilin skarast," sagði Elín Metta í viðtalinu við Sindra. Elín Metta Jensen hefur skorað 45 mörk í 61 leik með Val í Pepsi-deild kvenna þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gömul. Aðeins Margrét Lára Viðarsdóttir hefur skorað fleiri mörk fyrir yngri landslið Íslands.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira