Bubba leiðir fyrir lokahringinn á Bahamaeyjum 6. desember 2015 12:00 Bubba var í ham á þriðja hring Vísir/Getty
Bubba Watson er í kunnuglegri stöðu fyrir lokahringinn á Hero World Challenge sem fram fer á Albany vellinum á Bahamaeyjum en hann leiðir með tveimur höggum. Bubba, sem hefur sigrað átta sinnum á PGA-mótaröðinni á ferlinum, er á heilum 19 höggum undir pari eftir fyrstu þrjá hringina en hann var í miklu stuði á þriðja hringnum í gær og lék á 63 höggum eða níu undir pari. Hann fékk sjö fugla og einn magnaðan örn á hringnum en Englendingurinn Paul Casey kemur í öðru sæti á 17 höggum undir pari en hann lék einnig frábært golf á þriðja hring. Jordan Spieth, sem sigraði á mótinu í fyrra með tíu höggum, er einnig í baráttu efstu manna en hann er á 15 höggum undir pari fyrir lokahringinn, fjórum á eftir Bubba. Golfstöðin sýnir lokahringinn á Hero World Challenge í beinni frá klukkan 17:00 í kvöld.
Golf Mest lesið Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Körfubolti KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira