Fór af stað með einum tölvupósti Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. febrúar 2015 09:00 Þrátt fyrir ungan aldur hefur Arna Sif marga fjöruna sopið og spilað með Þór/KA síðan hún var aðeins fimmtán ára gömul. vísir/Valli
Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu, er mætt til Gautaborgar FC í samnefndri borg í Svíþjóð og mun hún æfa með liðinu í eina viku og spila æfingaleik á sunnudaginn. Gautaborgarliðið hafnaði í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, en um er að ræða eina sterkustu deild Evrópu. „Ég fékk tölvupóst frá umboðsmanni sem sagðist vera að leita að miðverði fyrir lið í Svíþjóð og spurði mig hvort ég væri samningslaus og hefði áhuga,“ segir Arna Sif við Fréttablaðið um aðdragandann. „Ég er samningslaus og sagði þetta vera mjög spennandi fyrir mig því stefnan hefur alltaf verið að fara út. Þjálfari Gautaborgar hefur verið að hringja í mig og við ákváðum að ég myndi fara út og skoða aðstæður, æfa með liðinu o sjá svo hvernig fer.“ Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gömul hefur Arna Sif spilað með Þór/KA síðan hún var 15 ára og er fyrirliði liðsins. Hún leiddi sitt lið til sigurs á Íslandsmótinu 2012 og á að baki tvo landsleiki fyrir Ísland. Hún vill að þeir verði fleiri í framtíðinni og telur að þetta skref gæti hjálpað sér. „Ég fer með opnum hug og geri mitt besta. Þetta hefur alltaf verið markmiðið og hjálpar mér algjörlega hvað varðar landsliðið,“ segir Arna Sif Ásgrímsdóttir.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Fyrirliði Þórs/KA æfir með einu besta liði Svíþjóðar Arna Sif Ásgrímsdóttir dvelur hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Gautaborg í eina viku. 3. febrúar 2015 17:08 Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira
Fyrirliði Þórs/KA æfir með einu besta liði Svíþjóðar Arna Sif Ásgrímsdóttir dvelur hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Gautaborg í eina viku. 3. febrúar 2015 17:08