Margir kylfingar í toppbaráttunni fyrir lokahringinn á Torrey Pines 31. janúar 2016 14:15 Jimmy Walker er í toppbaráttunni fyrir lokahringinn. Getty
Það er mjög erfitt að giska á sigurvegara fyrir lokahringinn á Farmers Insurance mótinu sem fram fer á Torrey Pines en 26 kylfingar eru á innan við fimm höggum frá efsta sætinu. Suður-Kóreumaðurinn K.J. Choi og Bandaríkjamaðurinn Scott Brown leiða á níu höggum undir pari en Gary Woodland og Jimmy Walker koma þar á eftir á átta undir. Aragrúi kylfinga kemur á sjö og og sex höggum undir pari og því ætti lokahringurinn að verða mjög spennandi þar sem margir eiga séns á titlinum og þeim 130 milljónum króna sem eru í verðlaunafé. Tilþrif mótsins hingað til átti Bandaríkjamaðurinn Jason Gore en hann fékk ævinýralegan albatross á 18. holu þar sem hann setti niður 230 metra innáhögg. Lokahringurinn á Torrey Pines verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 18:00.
Golf Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Móðir og sonur keppa bæði á þessum Ólympíuleikum Sport Ákærður fyrir morðið á kærustu sinni Sport Mætir á sinn sextugasta Super Bowl-leik en segir að þessi sé sá síðasti Sport Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira