Grindavík og HK/Víkingur síðustu liðin inn í sextán liða úrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2016 21:08 HK/Víkingur komst í kvöld í 16 liða úrslit. Vísir/Anton
B-deildarliðin Grindavík og HK/Víkingur tryggðu sér í kvöld sæti í sextán liða úrslitum Borgunarbikars kvenna í fótbolta og verða því í pottinum þegar dregið verið á morgun. Grindavík og HK/Víkingur komust í gegnum 2. umferðina ásamt fjórum öðrum 1. deildarliðum. Bæði lið hafa unnið tvo bikarleiki á tímabilinu og þá báða á útivelli. Grindavík vann 4-0 sigur á Aftureldingu á Varmá í Mosfellsbænum. Sashana Carolyn Campbell skoraði tvö af mörkum liðsins en hún skoraði þrennu í 9-0 sigri á Gróttu í fyrsta leik liðsins í 1. deildinni. Dröfn Einarsdóttir og Sara Hrund Helgadóttir skoruðu hin mörk Grindavíkurliðsins í leiknum. Þórhildur Stefánsdóttir afgreiddi ÍR-liðið með því að skora bæði mörkin þegar HK/Víkingur vann 2-1 sigur á ÍR á Hertz vellinum í Mjóddinni. Þórhildur er búin að skora í báðum bikarsigrinum HK/Víkingsliðsins til þessa í sumar. Andrea Magnúsdóttir minnkaði muninn fyrir ÍR. Sameiginlegt lið HK og Víkings hefur unnið þrjá fyrstu leiki tímabilsins en Jóhannes Karl Sigursteinsson, fyrrum þjálfari Breiðabliks og Stjörnunnar í úrvalsdeild kvenna, tók við þjálfun liðsins fyrir þetta tímabil.Liðin sem verða í pottinum þegar dregið verður í hádeginu á morgun:Pepsi-deild kvenna (10): Stjarnan, Breiðablik, FH, ÍBV, Þór/KA, Selfoss, Valur, Fylkir, KR og ÍA.1. deild kvenna (6): Þróttur R., Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir, Keflavík, Haukar, HK/Víkingur og Grindavík.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ Sjá meira