Pepsi-mörk kvenna: Í svona leik eiga bara að vera toppdómarar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. september 2016 22:55
Umdeilt atvik átti sér stað í stórleik Stjörnunnar og Breiðabliks í Pepsi-deild kvenna á laugardaginn. Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom Blikum yfir á 53. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar var mark dæmt af liðinu. Fanndís Friðriksdóttir átti þá skot að marki sem fór af varnarmanni Stjörnunnar í netið. Helgi Ólafsson, aðstoðardómari tvö, flaggaði hins vegar rangstöðu og því fékk markið ekki að standa. Farið var yfir atvikið í Pepsi-mörkum kvenna sem voru á dagskrá á Stöð 2 Sport 2 HD í kvöld. „Þetta var fullkomlega löglegt mark,“ var samdóma álit Helenu Ólafsdóttur, Rögnu Lóu Stefánsdóttur og Vöndu Sigurgeirsdóttur. „Það er auðvitað rosalega sorglegt ef þetta ræður úrslitum á þessu Íslandsmóti,“ sagði Ragna Lóa. Stjarnan jafnaði metin 11 mínútum fyrir leikslok og er því enn með tveggja stiga forskot á Breiðablik þegar tvær umferðir eru eftir. Stjörnukonur þurfa því bara að klára sína leiki gegn KR og FH og þá er Íslandsmeistaratitilinn þeirra. Vanda setti spurningarmerki við reynslu aðstoðardómaranna sem voru settir á leikinn. „Það er líka spurning hversu reyndir þessir aðstoðardómarar eru?“ spurði Vanda. „Í svona leik eiga bara að vera toppdómarar og mér finnst við eiga geta gert kröfu á það í kvennafótboltanum.“Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Stjarnan - KR | Barist um bikarinn Körfubolti Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira