Kristinn Freyr genginn í raðir Sundsvall Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. nóvember 2016 09:57 Kristinn Freyr Sigurðsson er farinn í atvinnumennskuna. vísir/anton brink
Kristinn Freyr Sigurðsson, besti leikmaður Pepsi-deildar karla 2016, er genginn í raðir sænska úrvalsdeildarliðsins Sundsvall frá Val. Þetta kemur fram á heimasíðu sænska liðsins. Kristinn Freyr skrifaði undir þriggja ára samning við sænska félagið sem hefur verið mjög áhugasamt um að fá hann. Liðið hafnaði í 13. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og var einu stigi frá því að fara í umspil um að halda sæti sínu. Þessi 24 ára gamli uppaldi Fjölnismaður fór á kostum í Pepsi-deildinni í sumar en hann skoraði fjórtán mörk og fékk silfurskóinn. Hann var eftir tímabilið kjörinn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar af leikmönnum hennar. Kristinn Freyr fór til Sundsvall á dögunum að skoða aðstæður auk þess sem hann ræddi við þjáflara liðsins. Hann var með tilboð frá sænska liðinu í höndunum sem og Íslandsmeisturum FH og Val þar sem hann hefur spilað undanfarin ár. Östersund í Svíþjóð sýndi honum einnig áhuga. „Ég er mjög spenntur fyrir því að spila með Sundsvall. Mér líst vel á borgina, félagið, leikmennina og þjálfarann. Ég held að þetta sé lið sem reyni að spila fótbolta sem hentar mér og því tel ég þetta rétta skrefið fyrir mig og minn feril,“ segir Kristinn Freyr Sigurðsson.
Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild karla Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira