Robert Sandnes á leið í KR Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. febrúar 2017 13:00 Robert Sandnes í leik með Selfossi árið 2012. vísir/vilhelm
Norski fótboltamaðurinn Robert Sandnes er á leið í KR og mun spila með liðinu í Pepsi-deild karla á komandi sumri, samkvæmt heimildum Vísis. Sandnes hefur áður spilað hér á landi með Selfossi sumarið 2012 og Stjörnunni ári síðar. Hann féll með Selfyssingum árið 2012 en náði Evrópusæti árið 2013 með Stjörnunni og komst í bikarúrslitin sama ár þar sem Garðabæjarliðið tapaði fyrir Fram í vítaspyrnukeppni. Í heildina spilaði Sandnes, sem getur bæði spilað sem vinstri bakvörður og á kantinum, 42 leiki í deild og bikar á tveimur tímabilum og skoraði tvö mörk. Hann fór frá Stjörnunni til Start í Noregi þar sem hann hefur spilað í úrvalsdeildinni undanfarin þrjú tímabil. Hann spilaði 22 leiki af 30 í deildinni fyrir Start á síðustu leiktíð, þar af átta sem byrjunarliðsmaður. Start endaði lang neðst og féll. Sandnes verður þriðji leikmaðurinn sem KR-ingar fá til sín eftir að síðasta tímabili lauk en áður eru komnir bakvörðurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson frá Breiðabliki og framherjinn Garðar Jóhannsson frá Fylki. Farnir eru Hólmbert Aron Friðjónsson í Stjörnuna og Jeppe Hansen í Keflavík.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira