Kristján Flóki tók mataræðið í gegn og stefndi á tíu mörk | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. júlí 2017 19:00
Kristján Flóki Finnbogason, framherji FH, hefur verið einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar í fótbolta, raðað inn mörkum. Hann segist ekki ætla að yfirgefa Íslandsmeistarana í sumar. Kristján Flóki er 22 ára og hefur skorað sjö mörk í deildinni í sumar. Erlend félög hafa sýnt honum áhuga en Hafnfirðingurinn segist ekki vera á förum. „Ekki eins og staðan er núna, nei,“ segir hann í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2. Sóknarmaðurinn fór ungur að árum í akademíu FC Kaupmannahafnar en sneri aftur til FH fyrir tveimur árum. Erfiðlega gekk fyrsta árið en hann kom sterkur inn á síðust leiktíð og þá hefur hann sprungið út í sumar. Hvað breyttist í vetur? „Fjölskyldan tók sig á í janúar. Við vorum ekki beint að borða neitt óhollt en við ákváðum að taka mataræðið aðeins í gegn. Það er í raun eina breytingin sem ég gerði í vetur,“ segir Kristján Flóki. Hann er með markmiðin á hreinu: „Markmiðið á þessu tímabili er að skora tíu mörk. Svo eru fleiri markmið sem eru meira tengd liðinu sem eru að vinna titilinn og bikarinn og komast eins langt í Evrópu og hægt er,“ segir Kristján Flóki Finnbogason. Alla fréttina úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kane sleppur með sekt og spilar á morgun Körfubolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Fótbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Enski boltinn Elías bikarmeistari í Danmörku Fótbolti McIlroy klár þrátt fyrir sársauka Golf Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Enski boltinn Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Sport Dagskráin í dag: Njarðvík getur tryggt titilinn og PGA meistaramótið hefst Sport Fleiri fréttir „Ég tek fulla ábyrgð“ „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Þetta er allt annað Fram-lið“ „Skagamenn eru bara ennþá að leita að nýju DNA“ Viðar Örn settur í agabann Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ „Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag „Þetta var vont“ „Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Þegar Martin Eyjólfsson varð Bjargvætturinn Sjáðu mark Hallgríms frá miðju Umfjöllun: Stjarnan - FH 1-2 | FH hafði betur í fjörugum nágrannaslag Uppgjörið ÍBV - Þór/KA 2-0 | Fullkomin byrjun nýliðanna heldur áfram Uppgjörið: KA - ÍBV 2-0 | Sjálfsmark sökkti gestunum í lok leiks Besta byrjun KR í efstu deild síðan árið 1959 Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum Sjá meira