Heimir afskrifar titilinn: Leikurinn við Val verður æfingaleikur fyrir bikarúrslitin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. ágúst 2017 18:14
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði að með jafnteflinu gegn KA á Akureyri í dag er ljóst að FH hafi verið að afhenda Valsmönnum Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu. FH og KA gerðu markalaust jafntefli og misstu Hafnfirðingar um leið að tækifæri til að skjótast upp í annað sæti Pepsi-deildar karla og minnka forystu Vals á toppnum í sjö stig. „Þetta er brekka. Með þessu jafntefli þá vorum við að afhenda Valsmönnum titilinn. Ég held að það verði erfitt að ná þeim úr þessu,“ sagði Heimir í viðtali við Svein Arnarsson eftir leik. Heimir játar því að hann sé búinn að afskrifa möguleika FH á Íslandsmeistaratitlinum. „Við erum búnir að kasta inn handklæðinu.“ Hann segir að leikurinn í dag hafi verið hægur. „Þetta gekk ekkert. Það var alltaf verið að flauta og menn að hlaupa saman. Það var ekkert tempó í þessum leik og örugglega ekki skemmtilegur leikur að horfa á.“ Hann tekur undir þá fullyrðingu að leikur FH og Vals á þriðjudag sé orðinn æfingaleikur fyrir bikarúrslitaleik FH gegn ÍBV um næstu helgi. „Já, það er nokkuð vel orðað hjá þér. Ætli það sé ekki best að gera það svoleiðis.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: KA - FH 0-0 | FH-ingar misstigu sig fyrir norðan Valsmenn standa enn betur að vígi á toppi deildar karla eftir að FH mátti sætta sig við markalaust jafntefli gegn nýliðum KA á Akureyri. 5. ágúst 2017 19:30 Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Íslenski boltinn Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti „Ég get ekki beðið“ Handbolti Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Enski boltinn „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenski boltinn Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Þróttur mætir bikarmeisturunum Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Bikarævintýri Fram heldur áfram Markamaskínan Tokic og margfaldur Íslandsmeistari í 5. deildina „Elska að horfa á FH“ Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Bestu mörkin: Uppgjör fyrstu fimm umferða Bestu deildarinnar Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni Afturelding lagði ÍA á Akranesi og ÍBV hefndi sín Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Víðir og Reynir ekki í eina sæng Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Uppbótartíminn: „Ég hef miklar áhyggjur af þeim“ Þróttur skoraði sex og flaug áfram Valur marði Fram í framlengingu Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Hafa notað sama byrjunarliðið í öllum leikjunum Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Hafa unnið FH tólf sinnum í röð Hrósuðu Alexander: „Varð ekkert var við það að þarna væri fimmtán ára strákur inni á vellinum“ Sjá meira
Leik lokið: KA - FH 0-0 | FH-ingar misstigu sig fyrir norðan Valsmenn standa enn betur að vígi á toppi deildar karla eftir að FH mátti sætta sig við markalaust jafntefli gegn nýliðum KA á Akureyri. 5. ágúst 2017 19:30
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast