Spilar Kári Árna fyrsta leikinn sinn í kvöld og það á erfiðasta velli Pepsi-deildarinnar? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2018 12:30 Kári Árnason á HM í Rússlandi með íslenska landsliðinu. Vísir/Getty
Lokaleikur tólftu umferðar Pepsi-deildar karla í fótbolta fer fram í Egilshöllinni í kvöld þegar Fylkismenn taka á móti Víkingum. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður líka sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Víkingar unnu KR-inga í síðasta leik sínum, unnu Fylkismenn í fyrstu umferð og gætu teflt fram HM-leikmanni í kvöld. Kári Árnason er kominn aftur til Víkinga eftir HM í Rússlandi með íslenska landsliðinu og hann gæti spilað sinn fyrsta leik í kvöld. Hann er búinn að fá ágæta hvíld eftir HM og er með leikheimild. Verkefni kvöldsins er gríðarlega mikilvægur leikur í barátunni í neðri hluta deildarinnar. Víkingar eru með 12 stig í 9. sæti en Fylkismenn eru með aðeins einu stigi minna. Fylkismenn sitja samt í fallsæti deildarinnar en það breytir ekki því að í dag eru þeir tölfræðilega með besta heimavöll Pepsi-deildinnar. (Hér má sjá árangur liðanna á heimavelli í sumar) Fylkisliðið hefur unnið alla þrjá leiki sína í Egilshöllinni í sumar en þeir spila þar vegna framkvæmda við Fylkisvöllinn. Þeir unnu þar 2-1 sigur á KA, 2-1 sigur á ÍBV og 2-0 sigur á Keflavík. Þrír leikir, níu stig og +4 í markatölu (6-2). Vandamál Fylkismanna er að í hinum sjö deildarleikjum liðsins hefur liðið aðeins fengið 2 stig af 21 mögulegu og markatalan er -8 (5-13). Fylkisliðið er þannig búið að skora fleiri mörk í þremur leikjum sínum í Egilshöllinni (6) heldur en í sjö leikjum sínum á öðrum völlum (5).
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sló golfhögg með krókódíl rétt fyrir aftan sig Golf „Mér finnst hún skipta sér af málum sem koma henni ekki við“ Fótbolti LeBron boðar aðra Ákvörðun Körfubolti Sekúndubrot á milli Tomma og Nablans í fyrstu grein Ólympíuleika Extra Sport Bjargaði lífi mótherja í miðjum leik Fótbolti Stórefnilegur og hafnaði níu milljarða króna samningi Sport „Skil ekki hvernig má kýla einhvern í andlitið?“ Íslenski boltinn Metár hjá David Beckham Fótbolti Haaland hefur skorað á öllum völlum nema einum Enski boltinn „Maður verður bara að styðja við bakið á honum“ Fótbolti Fleiri fréttir Gætu kvatt Bestu deildina án þjálfarans og lykilmanna Sölvi hæstánægður með Gylfa og vill sjá hann í landsliðinu Þorlákur verður áfram með Eyjamenn Hefur verið í liðinu eftir að ný leikstaða uppgötvaðist í Sambandsdeildinni Er eitthvað óeðlilegt að búið sé að gagnrýna þetta Valslið? „Skil ekki hvernig má kýla einhvern í andlitið?“ Hafa fengið áttatíu prósent stiga í boði með Gunnar í byrjunarliðinu Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-3 | Stjarnan lyftir sér upp í fjórða „Þetta er enginn flugeldasýningar Íslandsmeistaratitill“ Ekki gerst á Skaganum síðan Garðar átti markamánuð lífs síns Bjarni Guðjóns tók einn KR-ing sérstaklega fyrir Svona tryggðu Víkingar titilinn og öll hin mörkin úr Bestu í gær Gleðin í klefanum hjá nýju Íslandsmeisturunum „Þá fann ég á liðinu að það yrði ekki snúið við“ Sjáðu fögnuð Víkinga þegar Íslandsmeistaratitillinn var tryggður Gylfi Sigurðsson: Mikill léttir að tryggja fyrsta titilinn „Maður er orðinn Íslandsmeistari í sínu fyrsta giggi“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-1 | Evrópuvonir Blika lifa Uppgjörið: Víkingur - FH 2-0 | Víkingur er Íslandsmeistari Uppgjörið: KA - Vestri 1-1 | Sæst á jafnan hlut fyrir norðan „Ákveðin blæðing stoppuð í dag“ Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu „Hef ekki verið nægilega góður í sumar“ Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 3-2 | Fundinn: Jónatan Ingi Uppgjörið: FHL - Þór/KA 2-3 | Hasar í lokin Markasúpa í Grafarholtinu „Sérstaklega sáttur eftir ranglætið sem við vorum beittir“ Sjáðu lygilegar lokamínútur á Meistaravöllum „Næg er neikvæðnin í kringum okkur“ Sjá meira