Sveinn Aron seldur til Spezia Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. júlí 2018 13:02 Sveinn Aron Guðjohnsen er á leið í atvinnumennskuna. vísir/eyþór
Sveinn Aron Guðjohnsen, framherji Breiðabliks í Pepsi-deild karla í fótbolta, hefur verið seldur frá Kópavogsfélaginu til Spezia á Ítalíu, að því fram kemur í frétt á vef Breiðabliks. Sveinn Aron er fæddur árið 1997 og kom til Blika frá Val fyrir tveimur árum en hann skoraði tvö mörk í fyrstu umferð deildarinnar en hefur síðan skorað eitt mark í síðustu tólf leikjum. Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri að undanförnu eftir komu danska framherjans Thomasar Mikkelsen sem hefur farið frábærlega af stað í Kópavoginum. „Málið kom frekar óvænt upp og þrátt fyrir að leikmaðurinn sé mikilvægur hlekkur í Blikaliðinu vildi stjórn knattspyrnudeildar ekki standa í vegi fyrir því að þessi ungi framherji fengi tækifæri til að spreyta sig í atvinnumennsku,“ segir í tilkynningu Breiðabliks. Sveinn Aron er sonur Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmanns, en Sveinn á að baki 17 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann verður annar Íslendingurinn til að spila fyrir Spezia en landsliðsbakvörðurinn Hörður Björgvin Magnússon spilaði með liðinu tímabilið 2013/2014.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Dagskráin: Super Bowl og stórleikur Liverpool og Manchester City Sport „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Sjá meira