Tapaði með þeim í bikaúrslitaleiknum í fyrra en getur unnið þær í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2018 16:00 Agla María Albertsdóttir. Fréttablaðið/Ernir
Gamall liðsfélagi Stjörnukvenna gæti reynst þeim erfið viðureignar á Laugardalsvellinum í kvöld. Stjarnan og Breiðablik mætast í kvöld í úrslitaleik Mjólkursbikars kvenna í fótbolta en leikurinn hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Stærsti hluti Stjörnuliðsins í dag þurfti að sætta sig við tap í framlengingu á móti ÍBV í bikarúrslitaleiknum í fyrra. Einn leikmaður silfurliðs Stjörnunnar frá því í fyrra er aftur á móti andstæðingur Garðabæjarliðsins í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvellinum í kvöld. Agla María Albertsdóttir skoraði fyrir Stjörnuna í bikarúrslitaleiknum í fyrra og jafnaði þá metin í 1-1. ÍBV vann á endanum 3-2 í framlengingu. Agla María skipti yfir í Breiðablik í vetur og hefur átt mjög gott tímabil með Kópavogsliðinu. Agla María átti meðal annars þátt í þrjú af sex mörkum Breiðabliks í 6-2 sigri (1 mark og 2 stoðsendingar) á Stjörnunni í leik liðanna í maí og fiskaði aukaspyrnuna sem Selma Sól Magnúsdóttir skoraði sigurmarkið úr í seinni leik liðanna í júlí. Agla María Albertsdóttir hefur alls komið að 13 mörkum Blika í Pepsi-deild kvenna í sumar, skorað 6 mörk sjálf og gefið 7 stoðsendingar að auki. Fimm af stoðsendingum hennar hafa komið í síðustu tveimur leikjum.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Freyr himinlifandi með íslensku strákana Fótbolti Fleiri fréttir Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Sjá meira