Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Árni Sæberg skrifar 10. apríl 2025 10:56 Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar gekk vel og var mun betri en gert hafði verið ráð fyrir. Minnkandi verðbólga, hófleg hækkun lífeyrisskuldbindinga og nokkru hærri tekjur, höfðu jákvæð áhrif. Niðurstaðan er jákvæð um rúma tvo milljarða króna en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir afgangi upp á tæplega hálfan milljarð.
Þetta segir í tilkynningu Akureyrarbæjar til Kauphallar um að árseikningar sveitarfélagsins hafi verið lagðir fram í bæjarráði í dag. Þar segir meðal annars að sjóðstreymi hafi verið betra en árið áður og að veltufé sem hlutfall af tekjum sé gott, eða 15,13 prósent. Auknar tekjur frá Jöfnunarsjóði og þjónustu Samstæða Akureyrarbæjar, það er Aðalsjóður, Fasteignir Akureyrarbæjar, Eignasjóður gatna og Umhverfismiðstöð ásamt fyrirtækjum í eigu bæjarins, svo sem Félagslegum íbúðum, Strætisvögnum Akureyrar, Hlíðarfjalli, Hafnasamlagi Norðurlands og Norðurorku, hafi verið rekin með 2.218 milljóna króna afgangi. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar hafi því gengið mun betur en áætlun hafi gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun hefði verið gert ráð fyrir 436 milljóna króna jákvæðri niðurstöðu. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt hafi verið jákvæð um 3.987 milljónir króna en áætlun hefði gert ráð fyrir 2.853 milljóna króna rekstrarafgangi. „Meginskýringar á bættri afkomu eru áhrif lækkandi verðbólgu á árinu, hófleg hækkun lífeyrisskuldbindinga ásamt nokkurri hækkun tekna frá Jöfnunarsjóði og þjónustutekna, einkum hjá hafnasamlagi og veitum.“ Tæplega tuttugu milljarðar í launagreiðslur Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi hafi veltufé frá rekstri numið 5.736 milljónum króna, sem sé 766 milljónum krónum hærra en áætlað var. Sambærileg fjárhæð árið áður hafi verið 5.281 milljónir króna. Handbært fé frá rekstri hafi numið 5.588 milljónum króna. Fjárfestingahreyfingar hafi numið samtals nettó 5.043 milljónum króna en fjármögnunarhreyfingar hafi numið samtals nettó -160 milljónum króna. Afborgun langtímalána hafi numið 1.576 milljónum króna. Ný langtímalán hafi verið tekin fyrir 800 milljónir króna hjá Norðurorku. Hækkun á handbæru fé á árinu hafi numið 385 milljóna króna og handbært fé samstæðunnar í árslok hafi verið 2.951 milljónir króna. Veltufé frá rekstri árið 2024 í hlutfalli við tekjur hafi numið 15,13 prósentum í samstæðunni og 9,54 prósentum í A-hluta. Árið áður hafi hlutföllin verið 15,35 prósent í samstæðunni og 9,75 prósent í A-hluta. Heildarlaunagreiðslur með launatengdum gjöldum en án hækkunar lífeyrisskuldbindinga hjá samstæðunni hafi verið 19.710 milljónir króna. Fjöldi stöðugilda hafi að meðaltali verið 1.530, sem sé fjölgun um 46 stöðugildi frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld ásamt lífeyrisskuldbindingum samstæðunnar í hlutfalli við rekstrartekjur hennar hafi verið 52,9 prósent. Annar rekstrarkostnaður hafi verið 30,8 prósent af rekstrartekjum. Skatttekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafi verið 1,238 milljónir króna á hvern íbúa en tekjur samtals 1,891 milljónir króna á hvern íbúa. Árið 2023 hafi skatttekjurnar verið 1,138 milljónir króna á hvern íbúa og heildartekjurnar 1,737 milljónir króna á hvern íbúa. Gerðu ráð fyrir halla en fengu afgang Niðurstaða rekstrar A-hluta hafi verið jákvæð um 834 milljónir króna en fjárhagsáætlun hafi gert ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 632 milljónir króna. Samkvæmt efnahagsreikningi hafi eignir sveitarfélagsins í árslok 2024 verið bókfærðar á 72,304 milljarða króna en þar af hafi veltufjármunir verið 7.537 milljónir króna. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum hafi samkvæmt efnahagsreikningi numið 41,770 milljarðar króna en þar af hafi skammtímaskuldir verið 6,845 milljarðar króna. „Fjárhagur Akureyrarbæjar er mjög traustur og nam skuldaviðmið samstæðunnar í árslok 75% samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga en var 80% árið áður. Skuldaviðmið í A-hluta var 54% í árslok en var 56% árið áður.“ Veltufjárhlutfallið hafi verið 1,10 í árslok 2024 en hafi verið 1,17 árið áður. Bókfært eigið fé hafi numið 30,534 milljörðum króna í árslok en hafi verið 27,023 milljarða króna í árslok árið áður. Eiginfjárhlutfall hafi verið 42 prósent af heildarfjármagni á móti 40 prósentum árið áður.
Akureyri Rekstur hins opinbera Efnahagsmál Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Allt á uppleið á Grundartanga Viðskipti innlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Fleiri fréttir Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Ráðin framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Húsasmiðjunni Sjá meira