Reyna að koma sextán skipum gegnum herkví Samúel Karl Ólason skrifar 5. janúar 2026 10:17 Olíuflutningaskipið Evana við bryggju í Venesúela í lok desember. Að minnsta kosti sextán slíkum skipum virðist hafa verið siglt úr höfn í Venesúela á undanförnum dögum. Svo virðist sem áhafnir þeirra vilji komast gegnum herkví Bandaríkjamanna. AP/Matias Delacroix Áhafnir að minnsta kosti sextán olíuflutningaskipa virðast vera að reyna að komast gegnum herkví Bandaríkjanna um Venesúela. Slökkt hefur verið á sendum skipanna eða raunverulegar staðsetningar þeirra huldar á síðustu tveimur dögum en þar áður höfðu skipin verið við bryggju í Venesúela til lengri tíma.
Í einhverjum tilfellum hefur skipunum verið siglt úr höfn án leyfis frá starfandi ríkisstjórn Venesúela eða forsvarsmönnum ríkisrekins olíufyrirtækis landsins, samkvæmt frétt New York Times. Tólf skip til viðbótar eru ekki lengur þar sem þau voru og virðist sem slökkt hafi verið á staðsetningartækjum þeirra. Fimmtán af skipunum sextán hafa verið beitt refsiaðgerðum af Bandaríkjamönnum fyrir að hafa verið notuð til að flytja olíu frá Íran og Rússlandi, gegn refsiaðgerðum Bandaríkjanna. The four tankers are AQUILA II (9281152), BERTHA (9292163), VERONICA III (9326055) and VESNA (9233349). Here are three of them, spotted by @TankerTrackers in a single @CopernicusEU satellite image taken yesterday, leaving Venezuela’s main oil port and heading northeast. pic.twitter.com/yH7BRMlrF7— Christiaan Triebert (@trbrtc) January 5, 2026 Vilja nota herkví til að stjórna Venesúela Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur eins og frægt er lýst því yfir að olíuflutningaskip frá Venesúela verði stöðvuð. Frá því um miðjan desember hafa Bandaríkjamenn stöðvað og lagt hald á þrjú skip frá Venesúela. Marco Rubio, utanríkisráðherra, sagði svo í gær að herkvíin væri sú umfangsmesta í nútímasögunni og að hún hefði í för með sér að ríkisstjórn Venesúela gæti ekki aflað tekna. Rubio gaf til kynna í gær að ekki stæði til að ríkisstjórn Trump myndi taka beina stjórn á Venesúela. Þess í stað yrði herkvíin notuð til að þrýsta á ráðamenn þar til að gera þær breytingar sem Bandaríkjamenn vilja. Ein af kröfum Bandaríkjamanna snýst um að bandarískum olíufyrirtækjum verði veittur aðgangur að olíulindum í Venesúela. Önnur snýr að því að stjórnvöld Venesúela láti af samstarfi með Íran, Kúbu, Kína og Rússlandi. Trump og ráðamenn hans hafa gefið til kynna að frekari árásir komi til greina í Venesúela, verði kröfum þeirra ekki fylgt eftir. Wall Street Journal hefur eftir embættismönnum í Hvíta húsinu að verið sé að fylgja eftir nýrri og umdeildri þjóðaröryggisáætlun Bandaríkjanna. Þar er kallað eftir yfirráðum Bandaríkjanna í Norður- og Suður-Ameríku. Trump sjálfur sló á svipaða strengi um helgina. „Við viljum umkringja okkur góðum nágrönnum. Við viljum umkringja okkur stöðugleika. Við viljum umkringja okkur orku.“
Venesúela Bandaríkin Donald Trump Hernaður Bensín og olía Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Tengdar fréttir Rúmlega þrjátíu Kúbverjar sagðir hafa fallið í Venesúela Stjórnvöld á Kúbu fullyrða að 32 kúbverskir liðsforingjar hafi fallið í hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna í Venesúela um helgina. Þeir hafi unnið að aðgerðum í Venesúela að ósk þarlendra yfirvalda. 5. janúar 2026 08:34 Dýpra samtal og samvinna við Evrópusambandið „lykilbreyta“ „Sundurlyndi, yfirlýsingagleði og dauðahald í horfinn heim er ekki það sem við þörfnumst nú um stundir,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í aðsendri grein sem birtist á Vísi nú í morgun. Hún segir sótt að þeim grunngildum sem Ísland byggir utanríkisstefnu sína á og að Íslendingar geti ekki „lokað augunum“ á sama tíma og umheimurinn tekur „sögulegum breytingum“. 5. janúar 2026 07:50 „Ísland stendur þétt með vinum sínum“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er meðal þeirra norrænu leiðtoga sem lýst hafa yfir stuðningi við Grænland og Danmörku í framhaldi af enn einum ummælum Bandaríkjaforseta þar sem hann lýsir ósk sinni um að eignast Grænland. 5. janúar 2026 07:28 Stjórn Maduro situr sem fastast Venesúelski herinn hefur viðurkennt valdatöku Delcy Rodríguez sem starfandi forseta landsins. Hún var varaforseti, fjármálaráðherra og olíumálaráðherra í valdatíð Maduro. Því er ekki ljóst hvaða breytingar, ef einhverjar, árás Bandaríkjanna kemur til með að hafa á stjórnarfar í Venesúela. Bandamenn Maduro hafa enn töglin og hagldirnar í stjórn landsins. 4. janúar 2026 19:15 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira
Rúmlega þrjátíu Kúbverjar sagðir hafa fallið í Venesúela Stjórnvöld á Kúbu fullyrða að 32 kúbverskir liðsforingjar hafi fallið í hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna í Venesúela um helgina. Þeir hafi unnið að aðgerðum í Venesúela að ósk þarlendra yfirvalda. 5. janúar 2026 08:34
Dýpra samtal og samvinna við Evrópusambandið „lykilbreyta“ „Sundurlyndi, yfirlýsingagleði og dauðahald í horfinn heim er ekki það sem við þörfnumst nú um stundir,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í aðsendri grein sem birtist á Vísi nú í morgun. Hún segir sótt að þeim grunngildum sem Ísland byggir utanríkisstefnu sína á og að Íslendingar geti ekki „lokað augunum“ á sama tíma og umheimurinn tekur „sögulegum breytingum“. 5. janúar 2026 07:50
„Ísland stendur þétt með vinum sínum“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er meðal þeirra norrænu leiðtoga sem lýst hafa yfir stuðningi við Grænland og Danmörku í framhaldi af enn einum ummælum Bandaríkjaforseta þar sem hann lýsir ósk sinni um að eignast Grænland. 5. janúar 2026 07:28
Stjórn Maduro situr sem fastast Venesúelski herinn hefur viðurkennt valdatöku Delcy Rodríguez sem starfandi forseta landsins. Hún var varaforseti, fjármálaráðherra og olíumálaráðherra í valdatíð Maduro. Því er ekki ljóst hvaða breytingar, ef einhverjar, árás Bandaríkjanna kemur til með að hafa á stjórnarfar í Venesúela. Bandamenn Maduro hafa enn töglin og hagldirnar í stjórn landsins. 4. janúar 2026 19:15