Eftir sumarið tekur við óvissa Sigurgeir Þorkelsson skrifar 29. maí 2026 16:59 Jóhannes Þór segir óvissu ríkjandi innan greinarinnar. Vísir/Arnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir stöðuna góða innan greinarinnar yfir sumarið og sólmyrkvann 12. ágúst vera mikla búbót. Í haust taki þó við óvissa.
Þær fréttir bárust í gær að Bláa lónið, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, hefði fækkað stöðugildum um 29 á skrifstofu félagsins. Í tilkynningu kom fram að 115 starfi þar eftir breytingarnar sem þýðir að fimmta hverjum starfsmanni á skrifstofu félagsins var sagt upp í gær. Fyrst sólmyrkvi, svo óveðursský Óvissa í alþjóðamálum, hækkandi verðlag innanlands og stórkostleg hækkun á þotueldsneyti eru allt þættir sem benda til fækkunar ferðamanna í haust. „Þegar kemur inn í haustið er mjög erfitt að sjá hvernig þetta verður,“ segir Jóhannes. Hann segist ekki hafa orðið var við miklar uppsagnir innan greinarinnar en fyrirtæki leiti leiða til að spara og haldi að sér höndum við ráðningar. „Það er verið að bíða og sjá, það er það sem við heyrum frá fyrirtækjum almennt.“ Aukin gjaldtaka á baðlón fellur í grýttan jarðveg Jóhannes gagnrýnir fyrirætlanir stjórnvalda um aukna gjaldtöku á ferðaþjónustu. „Eitthvað sem hjálpar ekki í þessu eru hugmyndir um virðisaukaskattshækkanir á baðlón sem komu fram í fjármálaáætlun.“ Baðlón séu þegar farin að huga að því hvaða áhrif þetta kæmi til með að hafa á reksturinn. Samtök ferðaþjónustunnar eigi þó í virkum samræðum við stjórnvöld. „Við höfum farið ítarlega yfir með þeim hvaða áhrif þessar virðisaukaskattshækkanir hafa á ferðaþjónustu og á atvinnulífið í heild sinni,“ segir Jóhannes. „Það liggur alveg fyrir að þetta hefur neikvæð áhrif á efnahagslífið í heild sinni.“ Greinin þrífist á fyrirsjáanleika Fari virðisaukaskattshækkunin í gegn yrði hún líklega samþykkt í gegnum fjárlög. Fjárlög eru að jafnaði samþykkt í desember en taka gildi strax 1. janúar. „Þetta er náttúrulega allt of stuttur fyrirvari fyrir grein sem vinnur 12–18 mánuði fram í tímann,“ segir Jóhannes með áherslu. Þetta leiði til þess að ferðaþjónustufyrirtæki þurfi sjálf að taka á sig kostnaðarhækkanir sem skili sér svo síðar út í verðlag. Áhrifin gætu orðið ýktari fjær höfuðborgarsvæðinu Þá segir Jóhannes mikilvægt að hafa í huga að flest baðlón séu staðsett utan suðvesturhornsins. Fyrir einhver þeirra geti auknar álögur þýtt að þau þurfi að hafa lokað hluta úr ári. Í umsögn Vakar, baðslóns staðsett við Egilsstaði, við fjármálaáætlun kemur meðal annars fram að þessar fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar setji heilsársstarfsemi í hættu. Fari það svo að Vök þurfi að loka hluta úr ári muni það hafa margvísleg áhrif á Austurland, til að mynda á atvinnustarfsemi og hve eftirsóknarvert sé að heimsækja svæðið. Þrátt fyrir bjartsýni fyrir sumarið grúfir óvissan yfir haustinu. Þróun næstu mánaða á alþjóðasviðinu, auk ákvarðana stjórnvalda, munu skipta sköpum fyrir þróun greinarinnar.
Tengdar fréttir Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. 27. mars 2026 15:52 Baðlónabullið - stjórnvöld hlaupast undan ábyrgð Eitt af því sem hefur fengið aukna athygli um allan heim síðustu misserin er viðnámsþróttur samfélaga. Þar er átt við viðnámsþrótt atvinnulífs, heimila og hins opinbera til þess að bregðast við þegar áföll ganga yfir. 31. mars 2026 10:45 Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira
Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. 27. mars 2026 15:52
Baðlónabullið - stjórnvöld hlaupast undan ábyrgð Eitt af því sem hefur fengið aukna athygli um allan heim síðustu misserin er viðnámsþróttur samfélaga. Þar er átt við viðnámsþrótt atvinnulífs, heimila og hins opinbera til þess að bregðast við þegar áföll ganga yfir. 31. mars 2026 10:45