Viðskipti innlent

Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um aug­lýst starf

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Thelma Kristín Kvaran er eigandi Intellecta.
Thelma Kristín Kvaran er eigandi Intellecta. sýn

Dæmi eru um að hátt í tvö hundruð manns sæki um auglýst starf og er samkeppni á vinnumarkaði meiri nú en fyrir ári síðan. Þetta segir eigandi ráðningarstofu. Efnahagsástandið vegi þar þyngst.

Hundruðum sagt upp í maí, uppsagnir hjá Kviku banka, hópuppsögn hjá Rapyd, uppsagnir hjá Bláa lóninu, þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya, meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí.

Svona hljóða nýlegar fréttir um íslenskan vinnumarkað. Samkvæmt Hagstofunni mældist atvinnuleysi 5,8 prósent í apríl og var fjöldi atvinnulausra 13.500.

Thelma Kristín Kvaran, eigandi ráðgjafa- og ráðningafyrirtækisins Intellecta segist finna fyrir auknu atvinnuleysi.

„Við erum með mun fleiri á línunni þessa dagana heldur en bara fyrir ári síðan.“

Misjafnt er hver margir bítast um hverja stöðu. Umsækjendur um sérfræðinga- og stjórnendastöður eru yfirleitt færri en hundrað en þegar auglýst er eftir starfsfólki með minni sérfræðiþekkingu er sagan önnur.

„Þjónustustörfin... mjög margt sem tengist þjónustu og jafnvel sölu- og markaðsmálum, þá erum við að fá jafnvel upp í 150 til 200 umsóknir.“

Samkeppnin mikil

Thelma segir misjafnt hljóð í fólki. Samkeppnin sé mikil og margir verið lengi í atvinnuleit á meðan aðrir renna hratt í gegnum ferlið. Hún segir ýmislegt skýra stöðuna á vinnumarkaði en efnahagsástandið vegi þar þyngst.

„Það er búið að vera mikið um að fyrirtæki séu að endurskipuleggja og fyrirtæki eru mörg hver að eiga erfitt. Svo er búið að boða alls konar niðurskurð þannig fyrirtæki eru bara með áhyggjur.“

Thelma segir nóg um að vera hjá Intellecta.aðsend

Stóraukning

Hún segir þó góðan gang í ráðningum. Mikil fjölgun sé í hópi þeirra sem kjósi að setja sig á lista hjá ráðningarstofum enda sé fjöldi starfa sem komi inn á borð þeirra ekki auglýstur. Þá sé töluverð fjölgun í hópi þeirra sem leita í ráðgjöf við atvinnuleit.

„Það er eiginlega stóraukning í því hjá okkur. Fólk vill fara að vinna umsóknargögnin sín betur og er að fá ráðgjöf til að koma ferilskrá og kynningarbréfi í gott lag.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×