Innlent

Rýmdu skrif­stofur Hag­kaupa vegna hótunar

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Skrifstofur Hagkaupa eru í Skútuvogi.
Skrifstofur Hagkaupa eru í Skútuvogi. Vísir/Vilhelm

Hótun barst skrifstofu Hagkaupa í Skútuvogi í dag. Lögreglu var gert viðvart og skipaði í kjölfarið að starfsmenn rýmdu skrifstofuna. 

Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki sagt til um það hvers eðlis hótunin var. Það hafi hins vegar verið metið sem svo að skynsamlegast væri að senda alla starfsmenn heim í öryggisskyni.

Þeir sem áttu erindi í skrifstofur Hagkaupa í dag gera sparað sér ferðina.Vísir/Vilhelm

Málið segir hann til rannsóknar hjá lögreglu og að Hagkaup fari eftir þeirra fyrirmælum. 

Fréttastofa náði sambandi við skrifstofuna í Skútuvogi þar sem einn starfsmaður er eftir til að sinna allra nauðsynlegustu verkefnum.

Veist þú meira um málið? Við tökum á móti ábendingum af öllu tagi á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.

Fulltrúar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem Vísir hefur rætt við segjast ekki búa yfir upplýsingum um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×