Boðar þungar árásir og hernám Kharg-eyju Samúel Karl Ólason skrifar 11. júní 2026 12:59 Donald Trump segir að yfirtaka Bandaríkjanna á olíuframleiðslu í Venesúela hafi reynst báðum ríkjum vel. Nú segist hann ætla að taka yfir framleiðslu olíu og jarðgass í Íran. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump segir að Bandaríkjamenn muni gera mjög kröftugar árásir á Íran í kvöld. Þá segir forsetinn að Bandaríkjamenn muni hernema Kharg-eyju á Persaflóa á næstunni. Þá muni Bandaríkjamenn taka alfarið yfir olíu- og gasmarkaði Íran, ekki ósvipað því sem hann gerði í Venesúela.
Þetta segir Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum. Hann lýsir árásum kvöldsins sem „mjög hörðum“. Bandaríkjamenn og Íranir hafa skipst á árásu síðustu daga og virðist sem vopnahléið sem samið var um í síðasta mánuði sé ekki lengur í gildi. Um yfirtöku á olíu- og jarðgasframleiðslu í Íran segir Trump að þetta verði líkt því sem ríkisstjórn hans gerði í Venesúela og heldur því fram að það sé að reynast gífurlega vel, bæði fyrir Venesúla og Bandaríkin. Færsla Trumps á Truth social. Kharg-eyja er Írönum gífurlega mikilvæg þegar kemur að olíu- og gasframleiðslu. Þar er nánast allri olíu og öllu jarðgasi Íran dælt á flutningaskip. Flutningsgetan þaðan er um sjö milljónir tunna af olíu á dag. Sendi hermenn sem gætu tekið eyjuna Í mars lýstu Bandaríkjamenn því yfir að til stæði að senda um þrjú þúsund fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda og að hlutverk þeirra yrði að styðja við aðgerðir gegn Íran. Landgönguliðar hafa einnig verið sendir á svæðið. Umræddir fallhlífarhermenn tilheyra stórfylki (Brigade) úr 82. herdeild (Division) fallhlífarhermanna. Þetta stórfylki hefur verið þjálfað og búið þannig að hægt eigi að vera að senda meðlimi þess hvert sem er í heiminum með 18 klukkustunda fyrirvara. Hermennirnir eru sérstaklega þjálfaðir til að stökkva úr flugvélum og taka mikilvæga innviði eins og flugvelli. Sjá einnig: Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Þá var umfangsmikil umræða um að hermennirnir gætu verið notaðir til að hernema Kharg-eyju en Bandaríkjamenn höfðu þá gert loftárásir á eyjuna. Meðal annars voru árásir gerðar á flugvöllinn þar, sem gæti gert Írönum erfiðara um vik með að senda liðsauka. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Fréttin verður uppfærð.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Hernaður Tengdar fréttir Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Bandaríkjamenn og Íranir héldu áfram árásum sínum í nótt og í morgun en skotmörk fyrrnefndu voru hernaðarinnviðir tengdir loftvörnum, eftirliti og samskiptum. Síðarnefndu svöruðu með árásum á skotmörk í Barein, Jórdaníu og Kúvæt. 11. júní 2026 06:53 Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Stjórnvöld í Íran segjast hafa gert eldflaugaárásir á skotmörk í Kúvæt, Barein og Jórdaníu, eftir árásir Bandaríkjanna í gær. Þær árásir voru svar við atviki þar sem bandarísk þyrla fórst yfir Hormuz-sundi. 10. júní 2026 06:32 Bandaríkjamenn ráðast á Íran Bandaríkjamenn hafa hafið árás gegn Íran eftir að Íranir skutu niður þyrlu Bandaríkjahers. 9. júní 2026 21:23 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Sjá meira
Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Bandaríkjamenn og Íranir héldu áfram árásum sínum í nótt og í morgun en skotmörk fyrrnefndu voru hernaðarinnviðir tengdir loftvörnum, eftirliti og samskiptum. Síðarnefndu svöruðu með árásum á skotmörk í Barein, Jórdaníu og Kúvæt. 11. júní 2026 06:53
Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Stjórnvöld í Íran segjast hafa gert eldflaugaárásir á skotmörk í Kúvæt, Barein og Jórdaníu, eftir árásir Bandaríkjanna í gær. Þær árásir voru svar við atviki þar sem bandarísk þyrla fórst yfir Hormuz-sundi. 10. júní 2026 06:32
Bandaríkjamenn ráðast á Íran Bandaríkjamenn hafa hafið árás gegn Íran eftir að Íranir skutu niður þyrlu Bandaríkjahers. 9. júní 2026 21:23