Enn besta lausnin að kaupa Grænland Agnar Már Másson skrifar 5. júlí 2026 21:52 Ásælni Trumps í Grænlands hefur gefið Grænlendingum og Dönum gæsahúð. Getty Að kaupa Grænland er að mati Bandaríkjamanna enn besta langtímalausnin til að mæta öryggisþörfum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ónafngreinds bandarísks embættismanns á blaðamannafundi í Tyrklandi í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Bandaríkjanna og Danmerkur síðustu mánuði.
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) hefst í Ankara, höfuðborg Tyrklands, á þriðjudag en þar munu þjóðarleiðtogar NATÓ-ríkjanna meðal annars ræða stöðu bandalagsins, frekari stuðning við Úkraínu og ástandið sem uppi er í Mið-Austurlöndum. Bandarískir embættismenn héldu í dag fund með blaðamönnum en fengu þar að koma nafnlaust fram. „Eins og þetta blasir við núna er eina lausnin sem við höfum fundið til að leysa þetta að Bandaríkin kaupi Grænland, en við höldum áfram að leita að fleiri möguleikum,“ er haft eftir bandaríska embættismanninum samkvæmt umfjöllun Danska ríkisútvarpsins. Að sögn embættismannsins eru Nató-ríkin sammála um að öryggismál við Grænland séu „gríðarlega mikilvæg“ og „enn mikilvægari“ en þau voru þegar Bandaríkin og Danmörk undirrituðu varnarsamning árið 1951, fyrir 75 árum. Í kjölfar hótana Trumps um að leggja undir sig Grænland hófust samningaviðræður milli Bandaríkjamanna, Dana og Grænlendinga um hvernig mætti finna lausnir til þess að auka öryggi á svæðinu, einkum með tilliti til umsvifa Rússa á norðurslóðum. Samningamenn Danmerkur og Grænlands hafa gert bandarískum erindrekum það ítrekað ljóst að ekki standi til að gefa eftir grænlenskt landsvæði til Bandaríkjanna. „Spurningin er hvernig hægt er að leysa úr þessum áskorunum í nýrri veröld þar sem nú er mikið um sjóumferð þarna uppi eftir og með tilliti til mikilvægis Grænlands fyrir loftvarnir og fleiri kerfi sem eru varanleg,“ sagði embættismaðurinn og bætti við að Grænlendingar, Danir og Bandaríkjamenn ræddu sín á milli um öryggislausnir og að löndin vildu öll finna varanlega lausn. Áður hefur komið fram að Bandaríkin hafi lagt til að herstöðvar þeirra í Grænlandi yrðu formlega skilgreindar sem yfirráðasvæði Bandaríkjanna, það er að segja hluti af Bandaríkjunum. Trump mun hitta Selenskí og Sýrlandsforseta Einnig kom fram á blaðamannafundinum að Trump hyggðist hitta Volodimír Selenskí Úkraínuforseta á hliðarlínu leiðtogafundarins en þeir ræddu saman í síma í gær. Þá hyggst Trump einnig hitta Ahmad al-Sharaa, forseta Sýrlands.
Donald Trump Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Danmörk Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira