Neytendur

Kalla inn súkkulaðbitakökur

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Súkkulaðibitakakan var með ofnæmisvaldi.
Súkkulaðibitakakan var með ofnæmisvaldi. AÐsend

Gæðabakstur-Ömmubakstur hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla súkkulaðibitaköku vegna ofnæmisvalda.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að varan innihaldi ofnmæis- og óþolsvaldinn mjólk án þess að hann komi fram á umbúðunum. Því getur varan valdið viðbrögðum hjá fólki sem hefur ofnæmi eða óþol fyrir mjólk.

Allar súkkulaðibitakökur sem eru bestar fyrir dagsetningarnar 4. júlí 2026 til 14. júlí 2026 hafa verið innkallaðar. Hægt var að festa kaup á kökunum í verslunum Krónunnar um allt land og verslunum Mini Market í Hafnarfirði og Reykjavík.

Neytendur sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki heldur farga eða skila í verslunina sem hún var keypt í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×