Samgönguáætlun

Fréttamynd

Segir fyrri ríkis­stjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir ástæðu sex ára jarðgangastopps vera þá að síðasta ríkisstjórn hafi ekki treyst sér til þess að fara í Fjarðarheiðargöng vegna gríðarlegs kostnaðar. Hann segir Vegagerðina telja að framkvæmdir við Fljótagöng geti hafist sumarið 2027.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægast með jarð­göngum að losna við hættu­legustu vegi

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla.

Innlent
Fréttamynd

Gagnheiðargöng verði sátta­leið Aust­firðinga

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Um 44 prósent hlynnt for­gangs­röðun í samgönguáætlun

Um 44 prósent eru hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun og 31,6 prósent eru andvíg. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu en töluvert hefur verið rætt um forgangsröðun í samgönguáætlun og þá sérstaklega í tengslum við jarðgangagerð.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguáætlun og sam­keppni í flutningum

Félag atvinnurekenda leggur til tvær breytingar á tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun, sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi. Félagið leggur til að fjárframlögum til hafnarframkvæmda í Þorlákshöfn og framkvæmda við Þrengslaveg verði flýtt, í þágu greiðra samgangna við Þorlákshöfn og virkrar samkeppni í skipaflutningum. Tveir félagsmenn FA, flutningafélög sem veita stóru skipafélögunum tveimur vaxandi samkeppni, starfa í Þorlákshöfn.

Skoðun
Fréttamynd

Um samgönguáætlun

Undanfarið hafa birst vandaðar umfjallannir um samgönguáætlun innviðarráðherra, bæði í Austurglugganum ( agl.is ) og á RÚV. Þessar umfjallannir hafa dregið framm í dagsljósið ýmis atriði í þessari áætlun sem standast illa og á köflum einfaldlega ekki skoðun.

Skoðun
Fréttamynd

Samgönguráð: Fyrir landið allt eða eitt kjör­dæmi?

Samkvæmt lögum nr. 30/2023 um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála skipar ráðherra samgönguráð. Hlutverk þess er að gera tillögu til ráðherra um samgönguáætlun, fimm ára aðgerðaáætlun hennar, stefnu og forgangsröðun framkvæmda að fengnum áherslum ráðherra.

Skoðun
Fréttamynd

„Fyrsta ár ríkis­stjórnarinnar hefur mis­tekist“

Formaður Framsóknarflokksins segir það umhugsunarefni fyrir meirihlutann á Alþingi og ríkisstjórnina að verðbólga stefni að öllum líkindum yfir fimm prósent á næstu mánuðum og muni aukast. „Með öðrum orðum, fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist, henni hefur mistekist að ná niður verðbólgunni og vöxtunum.“

Innlent
Fréttamynd

Ráð­herra hafi gefið veiði­leyfi á sig

Samgönguáætlun til næstu fimm ára var á dagskrá þingsins í dag. Stjórnarandstaðan dró meðal annars í efa hversu raunhæf áætlunin er í ljósi efnahagslegs óstöðugleika. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir innviðaráðherra hafa veitt skotleyfi á sjálfan sig þegar hann sagðist ekki bundinn af ákvörðunum fyrri ríkisstjórnar um gerð áætlunarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Verkútboð í vega­gerð aug­lýst eftir langt hlé

Vegagerðin hefur boðið út lagningu bundins slitlags á 7,4 kílómetra kafla Einholtsvegar í Bláskógabyggð í uppsveitum Árnessýslu. Þetta er fyrsta framkvæmdaútboð sem auglýst er í vegagerð frá því í júlí síðastliðið sumar, ef frá er talið lítið útboð í gerð hringtorgs í Garðabæ í september.

Innlent
Fréttamynd

Mælir fyrir samgönguáætlun í dag

Gert er ráð fyrir að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mæli fyrir samgönguáætlun á Alþingi í dag. Um er að ræða fyrstu samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar en hún er fyrir árin 2026 til 2040 og henni fylgir einnig fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030.

Innlent
Fréttamynd

Inn­viðir og öryggi í hættu í höndum ráð­herra

Innviðaráðherra ætlar ekki að verða við ósk Farice ehf, (Ríkisfyrirtæki sem á og rekur fjarskiptastrengi til útlanda) um að breyta fjarskiptalögum á þann veg að öryggi fjarskiptastrengja og helgunarsvæðis þeirra verði fulltryggt.

Skoðun
Fréttamynd

Eyja­menn ó­sáttir við nýbirta samgönguáætlun

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum gagnrýnir harðlega nýframkomna samgönguáætlun sem hún segir að komi Eyjamönnum afar illa. Hún segir eyjaskeggja ekki lesa það úr áætluninni að nú skuli ræsa vélarnar, eins og Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra varð tíðrætt um þegar áætlunin var kynnt.

Innlent
Fréttamynd

Ekki mót­fallin Fljóta­göngum en ekki með nýrri for­gangs­röðun

Þingmenn í stjórnarandstöðu eru ekki mótfallnir byggingu Fljótaganga en telja að forgangsröðun ríkisstjórnarinnar sé röng. Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins eru á því að Fjarðarheiðargöng ættu að fara í forgang og þingflokksformaður Framsóknarflokksins gagnrýnir yfirlýsingar um að það sé verið að rjúfa kyrrstöðu. Það sé alls ekki raunin. Ekki náðist í formann Miðflokksins vegna umfjöllunarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Innlent
Fréttamynd

Vest­firðingar sjá fram á þrenn ný jarð­göng

Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi.

Innlent
Fréttamynd

Til stuðnings Fjarðarheiðargöngum

Ég finn mig knúinn til að skrifa athugasemd þar sem málstaður Austurlands virðist ekki njóta stuðnings á landsvísu. Til að setja tilfinningar fólks í samhengi þá skipta samgöngur landsbyggðina gríðarlegu máli og það má jafnvel segja að því fámennara sem svæðið er, þeim mun meira máli skipta samgöngur.

Skoðun
Fréttamynd

Hyggst reisa nýja flug­stöð og festa flug­völlinn í sessi

Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu.

Innlent
Fréttamynd

Skilur von­brigðin en hafnar því að hafa tekið ó­upp­lýsta á­kvörðun

Innviðaráðherra hafnar því að ákvörðun um breytta forgangsröðun jarðganga hafi ekki verið tekin á upplýstan hátt. Hann skilji vonbrigði samfélagsins fyrir austan en segir að með nýrri forgangsröðun sem boðuð er með samgönguáætlun sé ekki verið að slá Fjarðarheiðargöng út af borðinu. Stofnun innviðafélags um stórframkvæmdir skapi forsendur til að ráðast hraðar í stór samgönguverkefni en verið hefur.

Innlent
Fréttamynd

Breytt for­gangs­röðun jarð­ganga

Mikil umræða hefur skapast um nýja samgönguáætlun undanfarna daga, sérstaklega vegna breyttrar forgangsröðunar jarðganga. Ég hef fullan skilning á þeim vonbrigðum sem þessi breyting hefur valdið í samfélaginu eystra.

Skoðun