Kristján 104 sætum fyrir ofan Ólaf eftir fyrsta daginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2012 20:49 Kristján Þór Einarsson úr Kili. Mynd/GVA
Kristján Þór Einarsson úr Kili og Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum eru búnir með fyrsta hring á opna breska áhugamanna golfmótinu sem fram fer í Skotlandi en leikið er á bæði Glasgow Gailes Links og Royal Troon völlunum. Kristján spilaði sínar 18 holur á Royal Troon vellinum og lék hringinn á pari eða 71 höggi. Hann er í 41. til 68. sæti en 64 efstu komast í gegn um niðurskurðinn sem verður eftir morgundaginn. Það gekk ekki eins vel hjá Ólafi sem lék Glasgow Gailes á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari sem skilaði honum 145. til 184. sæti. Ólafur byrjaði samt mjög vel og lék ellefu fyrstu holur dagsins á tveimur höggum undir pari. Hann fékk þá fjóra skolla í röð og tapaði á endanum fimm höggum á síðustu sjö holunum. Kristján er því 104 sætum fyrir ofan Ólaf eftir fyrsta daginn en Ólafur er þó bara þremur höggum á eftir honum og á líka möguleika á því að ná niðurskurðinum takist honum að spila jafnvel og hann gerði á fyrstu ellefu holunum í dag.
Golf Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira