Keilis-systkinin með tólf fugla saman í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2012 18:58 Signý Arnórsdóttir. Mynd/Seth
Rúnar Arnórsson og Signý Arnórsdóttir systir hans voru í miklu fuglastuði á þriðja degi Íslandsmótsins í höggleik í dag. Rúnar fékk sjö fugla og Signý var með fimm fugla. Rúnar er í efsta sæti hjá körlunum en Signý er sjötta hjá konunum. Rúnar fékk fimm fugla á fyrstu sjö holum dagsins og náði alls sjö fuglum á hringnum. Hann fékk fleiri fugla í dag (7) en á fyrstu tveimur hringunum (6). Rúnar lék holurnar átján á fjórum höggum undir pari og hefur því leikið tvo af þremur hringum mótsins á 66 höggum. Signý lék hringinn á einu höggi yfir pari og sem var tíu höggum betri spilamennska hjá henni en í gær. Hún komst fyrir vikið upp í sjötta sætið en er engu að síður átta höggum á eftir Valdísi Þóru Jónsdóttur sem er í forystu. Signý fékk fimm fugla í dag en hafði "bara"fengið fjóra fugla samanlagt á fyrstu 36 holunum á mótinu. Rúnar og Signý fengu bæði fugla á fyrstu, fimmtu og sjöundu holu en Rúnar var síðan með fugla á annarri, fjórðu, fjórtándu og sextándu en Signý vann síðan líka högg á tveimur síðustu holunum á hringnum.
Golf Mest lesið Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Körfubolti KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira