Birgir Leifur í öðru sæti á Alicante Henry Birgir Gunnarsson skrifar 6. nóvember 2015 14:11 Birgir Leifur Hafþórsson. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson hóf í dag leik á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. Birgir Leifur lék á velli í Alicante. Alls er keppt á fjórum völlum samtímis á þessu stigi úrtökumótsins. Ekki liggur fyrir hversu margir komast áfram af hverju velli en gert er ráð fyrir að það verði um fimmtán. Okkar maður er heldur betur í möguleika á að fara áfram eftir virkilega góðan fyrsta hring. Birgir Leifur lék á 66 höggum í dag eða á fimm höggum undir pari. Birgir Leifur fékk skolla á fyrstu holu en nældi sér svo í örn á þriðji. Hann fékk svo fjóra fugla á seinni níu holunum. Flottur hringur. Birgir er jafn öðrum í öðru sæti sem stendur en nokkrir kylfingar eiga enn eftir að klára. Forystusauðurinn er á sjö höggum undir pari.
Golf Mest lesið Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Körfubolti KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira