Ragnhildur með eitt högg í forskot á Valdísi Þóru Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2017 19:20 Ragnhildur Kristinsdóttir. Mynd/GSÍmyndir
Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er efst eftir fyrsta daginn á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í dag á Hvaleyrarvelli en mótið er í umsjón Golfklúbbs Keilis í Hafnarfirði. Ragnhildur hefur eins högg forskot á Valdísi Þóru Jónsdóttur úr Leyni sem er í öðru sætinu. Þriðja er síðan Ingunn Gunnarsdóttir úr GKG. Ragnhildur lék fyrstu átján holurnar á tveimur höggum undir pari. Hún fékk þrjá fugla og einn skolla. Valdís Þóra náð fjóra fuglum en tapaði þremur höggum á tveimur holum í röð sem sá til þess að hún var einu höggi á eftir Ragnhildi. Ragnhildur og Valdís Þóra voru þær einu sem léku undir pari á fyrsta deginum. Heimakonan Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili var í forystu framan af en tapaði fimm höggum á síðustu fjórum holunum og datt niður í fimmta sætið.Efstu konur eftir fyrsta daginn: 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR -2 2. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL -1 3. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG +3 3. Karen Guðnadóttir, GS +3 5. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +4 6. Þórdís Geirsdóttir, GK +5 6. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK +5 6. Helga Kristín Einarsdóttir, GK +5 6. Ingunn Einarsdóttir, GKG +5 10. Berglind Björnsdóttir, GR +6
Golf Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira