Kim með sex högga forystu á Opna breska Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. ágúst 2017 23:00 In-Kyung Kim hefur spilað frábærlega í rigningunni í Skotlandi. Vísir/Getty
In-Kyung Kim er með sex högga forystu fyrir síðasta keppnisdaginn á Opna breska meistaramótinu í tennis sem nú fer fram á Kingsbarn-vellinum í Skotlandi. Kim hefur spilað frábærlega alla þrjá dagana til þessa. Hún kom í hús á 66 höggum í dag og er samtals á sautján höggum undir pari. Kim spilaði fyrsta hringinn á 65 höggum og annan á 68 höggum. Hún lék allan hringinn í dag án þess að fá skolla en hún fékk sex fugla og tólf pör í dag. Moriya Jutanugarn frá Tælandi og Georgia Hall frá Englandi koma næstar á ellefu höggum undir pari. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var einnig á meðal keppenda á mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Bein útsending frá lokakeppnisdeginum hefst klukkan 11.30 á Golfstöðinni á morgun.
Golf Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Dagskráin í dag: Blikar mæta Shakhtar Sport Fleiri fréttir Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Gunnlaugur Árni í níunda sæti á heimslista Barnabarn Donalds Trump keppir á LPGA-mótaröðinni Mun líklegast aldrei komast yfir þetta Jack Nicklaus fær sex milljarða í meiðyrðamáli Íslenski Tígurinn vann æsispennandi mót í Mississippi Uppfyllti óskina og fékk soninn í fangið á átjándu Rory McIlroy vill verða fyrirliði Ryder-liðs Evrópu Tiger Woods í enn eina bakaðgerðina Segir að stuðningsmenn Bandaríkjanna hafi farið yfir strikið Sló golfhögg með krókódíl rétt fyrir aftan sig „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Sjá meira