Sex skollar og tveir fuglar hjá Ólafíu Anton Ingi Leifsson skrifar 13. júlí 2019 14:24 Ólafía er í eldlínunni á sterkustu mótaröð heims. vísir/getty
Atvinnukylfingurinn úr GR, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, átti erfitt uppdráttar á þriðja hringnum á Marathon Classic-mótinu sem er hluti af LPGA mótaröðinni. Ólafía kom sér í gegnum niðurskurðinn í gærkvöldi en tæpt var það. Hún var svo mætt eldsnemma út í morgun en gengi Ólafíu var ekkert sérstakt í dag. Hún fékk fimm skolla á fyrstu níu holunum en fékk þó fugl á níundu holuni. Síðari níu holurnar spilaði hún svo á pari; fékk skolla á elleftu en fugl á 18. holunni og spilaði Ólafía því á fjórum höggum yfir pari í dag. Samtals er hún því á fimm yfir pari en þegar þetta er skrifað er Ólafía í 77. sætinu. Fjórði og síðasti hringurinn fer fram á morgun.
Golf Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Íslenski boltinn Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Körfubolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira