Blikar hafa ekki unnið leik í 46 daga en eru samt ennþá í öðru sæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2019 16:00 Júlí var ekki góður mánuður fyrir Blika. Hér eru þeir Viktor Örn Margeirsson og Gunnleifur Gunnleifsson í tapleiknum á móti HK. Vísir/Bára
Breiðablik fær KA í heimsókn í kvöld í 15. umferð Pepsi Max deildar karla og geta minnkað forskot KR-inga aftur í tíu stig með sigri. Blikar gátu komist á toppinn þegar liðið heimsótti KR 1. júlí síðastliðinn en sá leikur tapaðist 2-0 og Breiðablik hefur síðan aðeins náð í eitt stig út úr síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Síðasti sigurleikur Breiðabliksliðsins í Pepsi Max deildinni var á móti botnliði ÍBV 22. júní síðastliðinn en síðan eru liðinn einn mánuður og sextán dagar að auki. Blikar unnu ÍBV 3-1. Það er ótrúlega við þetta slaka gengi Blika að undanförnu er að þeir eru ennþá í öðru sæti deildarinnar. Skagamenn fengu enn á ný tækifæri til að taka það af þeim í gærkvöldi en ÍA tapaði þá fyrir FH. ÍA og FH eru nú bæði einu stigi á eftir Blikum og það er síðan bara tvö stig í Stjörnuna og HK, þrjú stig í Val og fjögur stig í Fylki. Stjarnan og Valur geta bæði með sigri í sínum leikjum í kvöld tekið annað sætið af Breiðabliki en Valsmenn þurfa þá stóran sigur á Fylki. Blikar hafa haldið öðru sætinu þrátt fyrir að vera með ellefta besta árangurinn í júlí af tólf liðum. Það voru aðeins Eyjamenn sem fengu færri stig í júlí en þeir náðu ekki í eitt einasta stig í mánuðinum. Breiðablik tekur á móti KA klukkan 18.00 í kvöld en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Stöð 2 Sport sýnir beint leik Vals og Fylkis sem hefst klukkan 19.15 en á sama tíma taka Stjörnumenn á móti Víkingum í Garðabænum.Síðustu fjórir deildarleikir Blika: 1. júlí - tap fyrir KR (0-2) 7. júlí - tap fyrir HK (1-2) 22. júlí - jafntefli við Grindavík (0-0) 29. júlí - tap fyrir Víkingi (2-3)Stig liðanna í Pepsi Max deild karla í júlímánuði: 1. KR 10 stig (Markatala: +6, 10-4) 2. HK 10 stig (+4, 7-3) 3. Valur 7 stig (+3, 7-4) 4. Grindavík 7 stig (+1, 3-2) 5. FH 7 stig (-1, 3-4) 6. ÍA 6 stig (+1, 5-4) 7. Víkingur 6 stig (=, 6-6) 8. Fylkir 4 stig -2, (5-7) 9. KA 4 stig (-2, 4-6) 10. Stjarnan 3 stig (=, 3-3) 11. Breiðablik 1 stig (-4, 3-7) 12. ÍBV 0 stig (-6, 3-9)
Kópavogur Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport „Ég elska peninga“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Sjá meira