Guðmundur og Birgir Leifur báðir í gegnum niðurskurðinn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. september 2019 17:21 Birgir Leifur Hafþórsson er á meðal bestu kylfinga Íslands. vísir/daníel
Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Birgir Leifur Hafþórsson komust báðir í gegnum niðurskurðinn á Open de Bretagne mótinu í Frakklandi sem er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Guðmundur Ágúst og Birgir Leifur eru báðir jafnir í 15. - 24. sæti á mótinu eins og er en þegar þetta er skrifað eru flestir kylfingar mótsins búnir að klára annan hringinn í mótinu. Íslensku kylfingarnir spiluðu á tveimur höggum yfir pari í dag og eru samtals á einu höggi undir pari í mótinu. Niðurskurðarlínan miðast við þrjú högg yfir par. Birgir Leifur fékk örn á 7. holu á hringnum í dag og þrjá fugla, en hann fékk einnig þrjá skolla og tvo skramba. Guðmundur Ágúst fékk fjóra fugla, en þrjá skolla og einn þrefaldan skolla á 10. holu. Josh Geary frá Nýja Sjálandi er í forystu í mótinu á fimm höggum undir pari eftir að hafa farið hringinn í dag á þremur höggum undir pari.
Golf Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira