Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Landsréttur taldi ekki sannað að einstaklingur sem dæmdur var í héraði fyrir peningaþvætti í tengslum við mannránið á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni hafi haft vitneskju um að reikningsupplýsingarnar sem hann veitti yrðu nýttar til að koma undan ávinningi af refsiverðu broti. Innlent 15.5.2026 00:15
Oddvitaáskorunin: „Sveitastjórinn“ myndi elta ræturnar Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 14.5.2026 18:33
Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Landsréttur kvað upp dóm í Gufunesmálinu svokallaða í síðdegis. Einn sem hlaut dóm í héraði var sýknaður og dómar þriggja sem dæmdir voru fyrir manndráp voru mildaðir um eitt til tvö ár. Ung kona sem var sýknuð í héraði var aftur á móti sakfelld fyrir hlutdeild í frelsisviptingu og dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Innlent 13.5.2026 15:47
Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Fiskeldisfyrirtækið First Water hefur lokið um ellefu milljarða króna fjármögnun, en um er að ræða útgáfu um sex milljarða króna breytanlegs skuldabréfs sem leidd sé af núverandi hluthöfum félagsins og um fimm milljarða króna lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka. Viðskipti innlent 22. apríl 2026 14:35
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. Innlent 21. apríl 2026 22:10
Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi á áttunda tímanum í kvöld. Einn var í bílnum en sá komst út úr honum af sjálfsdáðum. Innlent 21. apríl 2026 21:31
Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, vindorkuver Landsvirkjunar við Sultartanga, kom til Þorlákshafnar í kvöld. Það var flutningaskipið Idunn frá skipafélaginu Torcargo sem sigldi með farminn frá Rotterdam en um borð voru hlutir sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu. Innlent 20. apríl 2026 22:12
Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Hleri farþegaferjunnar Herjólfs, þaðan sem bílar fara um borð og frá borði, bilaði og opnaðist ekki í kvöld þegar ferjan var komin í land í Þorlákshöfn. Innlent 19. apríl 2026 21:32
Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Landgræðsla í Þorlákshöfn á sér langa og merkilega sögu. Í aldanna rás hefur mikið magn sands borist upp úr fjörunni austan við byggðina og úr Ölfusárósi. Skoðun 17. apríl 2026 11:18
Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir Orkuveituna hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði. Það eigi enn eftir að staðfesta með þriðju borholu en ef þær rannsóknir verði staðfestar verði það stórkostleg tíðindi fyrir þjóðina. Innlent 16. apríl 2026 08:30
Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Heilmikil ábyrgð fylgir því að vera kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn og því er mikilvægt að fólk sem velst til þeirra starfa vandi til verka, komi fram af virðingu og segi satt og rétt frá. Sjálfstæðisflokkur hefur verið við völd í Sveitarfélaginu Ölfusi síðustu tvö kjörtímabil eða frá sveitarstjórnarkosningum árið 2018. Ekki er hægt að segja að sá hópur sem með völdin hefur farið síðustu ár hafi alltaf vandað sig í samskiptum eða komið fram af fullri virðingu við fólk sem lagt hefur sig fram við að vinna samfélaginu gagn. Skoðun 16. apríl 2026 06:47
Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af. Innlent 15. apríl 2026 18:07
Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Aðalmeðferð í Gufunesmálinu svokallaða hófst í Landsrétti í morgun. Þar freista þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson þess að fá sautján ára fangelsisdómum fyrir manndráp hnekkt og Matthías Björn Erlingsson fjórtán ára dómi. Ríkissaksóknari lætur reyna á sýknu ungrar konu sem var ákærð fyrir að lokka fórnarlambið út af heimili sínu. Þá er hlutur ungs karlmanns sem var sakfelldur fyrir peningaþvætti undir en ákvörðun refsingar hans var frestað í héraði. Innlent 15. apríl 2026 10:10
Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 14. apríl 2026 08:01
Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Maður sem var hífður upp úr Ölfusá á laugardag er látinn. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en tilkynning barst um mann í ánni um fjögurleytið á laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögregluembættinu sem hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið. Innlent 13. apríl 2026 18:27
„Þetta er erfiður mánudagur“ Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni. Innlent 13. apríl 2026 15:37
Maður hífður upp úr Ölfusá Sigmaður Landhelgisgæslunnar hífði mann upp úr Ölfusá rétt fyrir klukkan fimm en leit hafði staðið yfir að manninum í ánni frá því klukkan rúmlega fjögur í dag. Innlent 11. apríl 2026 16:34
Ekið á mann í Þrengslunum Ekið var á bílstjóra flutningabíls í Þrengslunum í dag. Hann hafði að sögn lögreglu lent í vandræðum í brekku vegna mikillar hálku og stóð fyrir utan bílinn þegar öðrum bíl var ekið utan í hann. Innlent 28. mars 2026 13:37
Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Herjólfur bíður í um tuttugu mínútna fjarlægð frá Þorlákshöfn eftir því að sigla að landi. Ófært er eins og er. Skipið lagði af stað klukkan níu í morgun og var áætlað rétt fyrir klukkan 12 að landi. Innlent 26. mars 2026 12:33
Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Innlent 25. mars 2026 22:10
Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Af hverju eru íbúar í sumum sveitarfélögum ánægðari en í öðrum? Ef við vitum hvernig hamingjan verður til, af hverju er það ekki gert alls staðar? Er hamingjan einfaldlega spurning um ákvarðanir? Skoðun 20. mars 2026 10:31
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. Innlent 4. mars 2026 08:30
Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi segist styðja lista Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi af heilum hug og hann lofar því að hann muni ekki flytja aftur til Vestmannaeyja en orðrómur um að hann blandist í bæjarmálapólitíkina þar hefur lifað góðu lífi. Innlent 3. mars 2026 16:30
Hlutverk sem ég tek með auðmýkt og ábyrgð Í gærkvöldi, á fjölmennasta aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins Ægis í Ölfusi frá upphafi, var framboðslisti D-listans samþykktur og mér falin sú mikla ábyrgð að leiða listann í komandi kosningum. Það er heiður sem ég tek með auðmýkt og djúpu þakklæti. Skoðun 3. mars 2026 16:02